Goðasteinn - 01.06.1975, Blaðsíða 12
1900. Hún kostaði þá 600 krónur. Árið 1960 keypti ég raf-
magnsrakvél, sem kostaði þá 600 krónur. Betra hefði nú verið þá
að geta keypt jörð fyrir sama verð og láta skeggið vaxa. Um
aldamótin 1900 voru allir eldri mcnn með skegg, margir voru
með það fallegt og vel hirt og voru virðulegir ásýndum. Það er
dálítið broslegt, að nú eru fiestir ungir menn með skegg en eldri
mennirnir raka sig.
Til voru sérkennilegir menn. Ég heyrði talað um mann, sem
byrjaði aldrei á vinnu sinni framan af degi. Hann hlóð stéttina
á Stafafelli við koluljós í skammdegismyrkri. Hún var prýðilega
hlaðin og stendur enn. Ég hef heyrt, að hann hafi gjört þessa vísu:
Ljós í Kalli, ljós á Hlíð,
Ijós á Stafafelli,
ljós hjá öllum Bæjarlýð,
ljós í Eskifelli.
1 brúðkaupsveislu var ég um 10 ára gamall og hlakkaði mikið
til. Veislur voru alltaf skemmtilegar, menn voru þar svo mátu-
lega glaðir. Oftast var vín en alltaf í hófi. Ræður voru fluttar og
mikið sungið af fögrum ættjarðarljóðum en dæguríjóð engin. Séra
Jón Jónsson á Stafafelli orti alitaf brúðkaupsljóð. Konur klædd-
ust faldbúningi í brúðkaupsveislum. Þá voru litlar stofur á bæjum
en þar var þó dansað. Reistir voru skálar, þar sem veislukostur
var borinn fram og drukkið kaffi, súkkulaðsmjólk, púns og vín.
Það voru góðar samkomur í Lóni, sá aldrei vín á manni.
Gömlu mennirnir voru góðir fjármenn og þolnir að standa
yfir fé. Bestir þóttu þeir að vonum, sem eyddu litlu heyi og höfðu
þó féð vænt, en konurnar höfðu einnig gott auga fyrir fé. I Lóni
cru þrjár ungar stúlkur framúrskarandi fjárglöggar, enginn karl-
maður í Lóni jafnast í því á við þær, og eru þeir þó margir sæmi-
lega fjárglöggir. Það er gaman að ganga að fé á fjöllum. Dal-
irnir eru falleg.ir og margt fallegt á fjöllum, steinar, grös og blóm
og loftið hressandi. Þar er gaman að syngja: „Frjálst er í fjallasal."
Eitt skáldið kvað svo um fjöllin: ,,Ég elska yður, þér íslands
fjöll,“ og hafði svo mikið við að þéra þau. Nú treysti ég mér ekki
til að ganga á fjöll, ég bara horfi til fjallanna eins og Halla.
10
Goðasteinn