Goðasteinn - 01.06.1975, Qupperneq 13
Ég átt.i heima í Svínhólum í 50 ár. Það er eðlilegt, að hugur
minn sé bundinn við æskuslóðirnar, þar sem flest ævisporin liggja.
Hugur minn leitar til leikfélaga minna og til barnanna, sem tóku
við af þeim í Svínhólum. Þar voru eitt sinn 12 börn, 6 á hvorum
bæ. Þau voru á misjöfnum aldri en léku sér saman og kom vel
saman. Ég brá mér stundum í leik með þeim, ég hef alltaf haft
yndi af börnum. Það er ekki vandalaust að ala upp börn og þau
finna fljótt, hvað við þau er haft, og vanda ber málið í návist
þeirra, af fullorðna fólkinu lærist það engu síður en athafnir.
Börn lærðu fljótt að sitja hest, fluttu heim hey af engjum 7 ára
gömul og fórst það vel.
Það var tjcrn við túnið í Svínhólum. Þar léku börnin sér mikið
sumar og vetur. Þar renndu þau sér á skautum og leggjum, þegar
ísar voru, og létu skútur sínar sigla á sumrum. Það voru margar
þúfur í tjörninni, sem urðu að eyjum. Um eyjasundin sigldu þá
skipin, fóru stundum í strand, en alltaf náðust þau á flot aftur.
Gaman var að fylgjast með störfum þessa glaða og saklausa hóps.
Eigi veit ég, hvenær hætt var að hafa í seli, en það hefur verið
gert frá öllum bæjum í Lóni, seltætturnar sýna það. Hægt hefur
verið að una í seli hjá góðri selsráðskonu og friðsælt að búa inni
á dalnum. Margar seltættur hef ég séð. Það ber lítið á þeim sum-
um. Einn bóndi byggði sauðahús upp úr seltótt. Tótt þessi stendur
enn um 100 ára. Manninn þekkti ég vel. Hann var hættur búskap
um aldamót, þá nokkuð aldraður, myndarmaður og mikill göngu-
garpur. Þá áttu bændur fleiri sauði en ær, þá var enginn dilka-
prís. Þá höfðu bændur beitarhús, þar sem landgott var, og smal-
inn stóð yfir sauðunum alla daga allt frá dögun.
Athafnalíf var mikið í Lóni. Þar var 5 árabátum haldið úti frá
Papós og einum frá Hvalnesi og stundum tveimur. Á þeim voru
duglegir sjómenn og glöggir formenn og kom oft mikill fiskur á
land. Sveitin var björguleg. Silungsveiði var í Lóninu, selveiði
haust og vor í Vigrinni og æðarvarp og selveiði á Fjarðarskerjum.
Svo voru góð afréttarlönd og fénaður vænn, sérstaklega úr Stafa-
fellsfjöllum. Enn er gott að búa í Lóni og allt auðveldara en áður
var, búið að brúa allar ár og samgöngur góðar.
Ýmislegt gat skcmmtilegt skeð í aðdráttum. Það var um vor,
Goðasteinn
11