Goðasteinn - 01.06.1975, Blaðsíða 15
hlöðnum veggjum mót norðri og hlöðnum stöfnum og kjallari
undir, sem þótti góð geymsla. Þar var geymdur mjólkurmatur,
garðamatur og slátur. Þessi hús voru með timburþili á framhlið
og járnklædd, svo nú hætti að leka niður rúmin. Þetta þóttu
fyrirmyndarhús, voru með þremur gluggum móti suðri og dyr
þar á miðju húsi. Þegar gengið var inn, var stofa til vinstri, eld-
hús til hægri, sofið uppi á lofti. Eldavélar komu í nýju húsin, og
með þeim hvarf reykjarsvælan í bænum.
Lestrarfélag var í hreppnum um aldamótin. Nú var stofnað
búnaðarfélag, málfundafélag og glímufélag, síðar kom svo kven-
félag. Þessi félög komu mörgu góðu til leiðar. Allir bændur gengu
í búnaðarfélagið, og nú var farið að girða túnin, sem áður voru
ógirt og þýfð. Túnin voru jafnframt færð út og sléttuð ár frá ári.
Fyrri tíða menn hafa þó girt tún sín, ég sá vel móta fyrir gömlum
túngarðsbrotum í Svínhólatúninu, en lítið hefur það tún verið.
Af öllu Svínhólatúni komu 60 hestburðir um aldamót, nú er þar
stórt og fallegt tún, og hvarvetna er heyjað á ræktuðu landi.
Ég man ekki, hvaða ár málfundafélagið var stofnað, en það
var fyrir 1910. Giftir og ógiftir karlmenn gengu í það, fullir af
fjöri og áhuga fyrir framfaramálum. Fundir voru haldnir á heim-
ilum, þar sem húsrými var fyrir hendi. Þarna var rætt um skóla-
mál, um ráðningu lærðra barnakennara og bætta aðstöðu fyrir
kennslu. Annað mál, sem mikið var rætt, var bygging fundarhúss,
útvegun fjár til byggingar og ákvörðun um það, hvar byggja
skyldi. Um þetta urðu snarpar umræður, tillaga borin fram og
samþykkt og húsið var byggt.
Skemmtanalíf var lítið, áður en fundarhúsið komst upp, en
þó skemmti fólk sér á ýmsan veg, heimsótti hvað annað um jól
og nýár. Þá sat eldra fólkið við spil og samræður, en yngra fóikið
dansaði í stofunn.i. Hljóðfærið var lélegt, það þótti gott ef það
var munnharpa, í þá daga var fólkið nægjusamt.
Þorleifur Eiríksson í Bæ var nýbúinn að byggja íbúðarhús, sem
var stórt, því heimilisfólkið var margt. Það var ekki búið að
innrétta það um haustið. Nú var það á málfundi, að hann bauð
mönnum að halda samkomu í húsi sínu fyrir sveitungana, og
Goðasteinn
13