Goðasteinn - 01.06.1975, Page 18

Goðasteinn - 01.06.1975, Page 18
Gunnar Magnússon frá Reynisdal: Um silungsveiði í Dyrhólaósi Dyrhólaós er, sem kunnugt er, í Mýrdal, norðan Reynisfjöru, Dyrhólaeyjar og Dyrhólafjöru. Ósinn er venjulega sjávarlón, sem hefir útfall í sjó, en er aðra tíma uppi, sem svo er nefnt eystra, en þá kastar sandi í útfall hans. Vex Ósinn þá dagvöxtum og flæðir yfir víðáttumiklar engjar, eða svo var hér fyrrum, en nú er Ósinn oftast mokaður út, áður en hann nær að verða mjög mikill. Ár og lækir falla í Dyrhólaós. Skal ég geta þeirra að nokkru og byrja vestan frá: í Dyrhólahverfi er lækur, sem Norðurgarðs- lækur heitir, og rennur hann í Ósinn. Þá er Brandslækur, sem kemur innan úr Dölum. Deildará kemur úr Deildarárgili. Rauði- lækur er samansafn af keldum og smálækjum á Mýrunum. Hvammsá kemur úr Hvammsgili. Hleypilækur á upptök sín í Fosslandi og Reynishverfislandi. Smálækur er vestan við Reynis- holt, á upptök þar í mýrinni niður af Reynisholti. Allar þessar ár og lækir falla í Dyrhólaós, og er þetta töluvert vatnsmagn, er allt kemur saman, sem sjá má af útfalli Óssins, er hann rennur í venjulegu ástandi í sjó. 1 öllum þessum ám og 16 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.