Goðasteinn - 01.06.1975, Side 24

Goðasteinn - 01.06.1975, Side 24
kreppusótt. En hér sem endranær lagði Drottinn mér líkn með þraut. Þau þáverandi höfðingshjón, prófastur í Rangárþingi, Gísli Thorarensen og Jórunn Sigurðardóttir, tóku mig og hjúkruðu sem einkabarni sínu í einu og öllu þann þriggja vikna tíma, er ég lá þar mjög þungt haldinn, ýmist rænulaus, og má ég cf til vill kalla þau lífgjafara mína. Verð ég nú að geta þess, að meðan ég lá svona aumlega á mig kominn, mundi ég þá hart nær ekkert, hvað við mig hafði fram komið, nema það eina, þegar ástvinur minn, Stefán, kom að austan aptur og minntist við mig í seinasta sinni mcð heitum lukkuóskum. Sárbeiddi hann mig þá, ef mér batnaði, að leitast við að byggja á þeim grundvelli, er hann hafði lagt, nefnilega að framhalda námi mínu. Þegar mér fór að batna, hélt ég áfram ferð minni í von um að ná foreldraheimkynnum þá um sumarið, sem með veikum mætti líka skeði. Dvöl mín varð þar þó eigi lengur en einn mánuð, eptir hvern faðir minn fylgdi mér sjálfur suður til skólans aptur. Fékk ég þá brátt á mörgu að kenna þann mér ógleymanlega, örðuga vetur, einkum að Stefán var horfinn mér. Skólahúsið grautfúna versnaði meir og meir, svo að einkum í norðanvindi botnfraus blek í byttunum á skólaborðinu, og skónum okkar komum vér ekki upp nema þeir væru undir fötunum í hinum lélegu marhálms fletum. Þetta, ásamt fleiru, olli því, að vikum saman var eigi við námi hreyft. Þar að auk veikindi sam- fara óþrifnaði hlutu talsvert að hindra minnstu framfarir, bæði mín og annarra í slíku aðsetri. Ei að síður átti svo að kalla, að ég þennan vetur lærði grund- vallarreglur latneskrar málfræði. Fór ég síðan um vorið, þá skóla var sagt upp árið 1804, austur að Hofi til foreldra minna. Bauðst nú þáverandi sýslumaður í Suður-Múlasýslu, Thórður Thorlacius, að taka mig til kennslu til framhalds því, ég áður hafði numið, og þó einkum til að kenna mér lögfræði. Fór ég til hans í þessu skyni um haustið 1804 að Gytteborg i Reyðarfirði. Lét hann mig læra byrjun í lögfræði, 12-16 blöð af professors Norregaards Criminal- rette (mig minnir bókin héti svo), og má nærri geta, að ég lítið sem ekkert skildi í bók þessari, einkum þar útskýring kennarans 22 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.