Goðasteinn - 01.06.1975, Side 25

Goðasteinn - 01.06.1975, Side 25
var eigi við mitt hæfi. Aðrar bókmenntir nam ég þar eigi, því þess var enginn kostur, samt lagði ég mig sjálfkrafa eptir dönsku, en þá vantaði mig grammatík - einnig að tala hana - en frá þessu hindruðu mig, einkum á helgum og hátíðum þær mér svo strang- lega að höldnu æfingar að skjóta fugla til sælgætis, einkum hrafna. Þaðan fór ég heim til föður míns vorið 1805. Þann 22. október s. á. barst föður mtnum embættisbréf frá Geir biskup Vídalín þess cfnis, að skólinn sé nú fluttur að Bessa- stöðum og að ég því aðeins fái ölmusu, að ég verði kominn þangað 31. s m. Nú var í raun réttri allt of seint, samt lagði ég á stað ept.ir tvo daga frá Hofi í Álptafirði, að morgni þess 25. okt. og fékk skírteini hjá helstu cmbættismönnum á leiðinni, hvenær áminnst bréf hefði farið þar og þar framhjá. Náði ég að Lambastöðum á Seltjarnanesi þann 31. s.m. e.m. Átti nú á sama degi að veita ölmusu mína, því biskupi þótti seinka koma mín, en er ég fékk honum áðurnefnd skírteini við- víkjandi bréfi hans til föður míns, sá hann, að þetta var engan veginn mér að kenna, en af þessu er auðsætt, að ekki mátti tæpara standa. Þrcifaði ég þá sem endranær á því, að forsjón Guðs og farsæl forlög héldu í hönd mína. Hlaut ég nú að byrja frá upphafi með námið, því eptir áminnstu var því litla gleymt, sem áður var nurnið. Átti ég ærið erfitt uppróðra úr neðsta sæti. Þó tók ég smám- saman þeim framförum, að ég var útskrifaður með sæmilega góð- um vitnisburði árið 1809, þann 20. maímánaðar. Dvaldi ég þau þrjú sumur, sem liðu hér á milli, það fyrsta á Brekku á Álptanesi hjá góðum húsbónda, etazráði ísleifi Einarssyni, síðan háyfirdóm- ara. Annað sumar var ég kaupamaður norður í Eyjafirði og hið þriðja hjá þáorðnum skólahaldara, Bjarna Halldórssyni í Sviðholti. Næsta ár eptir var ég þénari hjá sekretéra B. Stephensen á Lágafelli, fór þó um sumarið 1810 kaupamaður í Eyjafjörð, en um haustið, eptir að ég var kominn suður, fór ég að hitta foreldra mína, sem nú vóru komin að Kálfafelli á. Síðu. Árið 1811 gekk ég að eiga jómfrú Þórdísi Magnúsdóttur, Andréssonar klausturhald- ara á Þykkvabæjarklaustri. *) 0 Kvæntist 1 nóv., en næsta ár byrjuðum við búskap á Klaustrinu. Goðasteinn 23

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.