Goðasteinn - 01.06.1975, Qupperneq 28
nesi, árið eptir að hann útskrifaðist, að brenna þang til pottösku,
og sagði hann opt, að hefði hann þá ekki búsett sig í sveit, mundi
hann hafa framhaldið þeirri mjög arðsömu atvinnu.
Um haustið 1838 slasaðist hann á vinstra fæti og lá í því hart-
nær 18 vikur rúmfastur, nema þegar hann seinustu vikurnar lét
setja sig á hestbak í kvensöðli á sunnudögum að gæta cmbættis-
starfa sinna í kirkjunni.
Nokkrum árum áður hann dó, þjáðist hann af megnri köldu í
vinstri mjöðminni, sem aldrei skildi við hann úr því, enda þótt
Jóni landlækni Thorsteinsen tækist að lina hana mikið með með-
ölum þeim, er hann ávallt brúkaði eptir hans fyrirsögn.
Af öllum þeim, er til þekktu, mátti séra Jón með sanni kallast
þrekmaður til lífs og sálar. Hann var með hærri meðalmönnum á
vöxt, vel vaxinn, með svart, hrokkið hár og augun skörp og tindr-
andi, þangað til á seinustu árum, að hann hafði mjög dapra sjón.
Hann var skrautmenni, enda hafði honum hlotnast líkams atgerfi
af ríkulegum mælir. Fóthvatur var hann og besti göngumaður, og
sýndi það sig best á hans seinustu æfiárum. Söngmaður var hann
svo góður, að hann átti fáa sína líka x þeirri list. Hann var vel
skáldmæltur og orti bæði erfiljóð og tækifærisvísur. Kvöddust
þeir opt með stökum, séra Páll Jónsson skáldi, Sigurður Breiðfjörð
og séra Jón, er allir vóru samtíða hér á Vestmannaeyjum.
Eins og allir vita, var á þeim tímum mjög örðugt að vitja
reglulega læknis, fyrr en í ótíma á stundum. Þá hafði Sveinn Páls-
son læknir gefið honum (sr. Jóni) umboð sitt í tilfellum að taka
blóð, bólusetja og viðhafa einföldustu meðöl. I þeirri stöðu ávann
hann sér almennings lof, og mun hann jafnvel hafa látið sér um
munn fara, að hefði hann lesið læknisfræði, mundi sú staða sér
af náttúrunni hafa orðið einna geðfelldust. Hann var glaðlyndur
og hafði ætíð skemmtun af að vera í félagi með góðum og guð-
hræddum mönnum. Að náttúrufari var hann bráður og örsinna,
en varla mun hafa fundist sáttgjarnari maður, enda tók hann sér
opt í munn þessi orð Heilagrar ritningar: „Látið ekki sólina undir-
ganga yfir yðar reiði.“
Allir, sem þekkja iífsásigkomulag landsins á þeim tímum, sem
hann lærði í Reykjavíkur- og Bessastaðaskóla, geta getið því nærri,
26
Goðasteinn