Goðasteinn - 01.06.1975, Page 30

Goðasteinn - 01.06.1975, Page 30
desember 1818. Drukknaði ásamt 12 öðrum 5. mars 1834. 6. Jórunn, fædd 12. jan. 1821, gipt fyrrum verslunarfulltrúa J. S. Salmonsen. 7. Guðfinna, fædd 9. nóv. 1823, gipt Árna meðhjálp- ara Einarssyni á Vilborgarstöðum. 8. Vigfús, fæddur 16. jan. 1826, deyði 3. okt. s.á. 9. Stefán, fæddur 6. okt. 1829, giptur 1862 Önnu ljósmóður Benediktsdóttir prests, Magnússonar á Mos- felli, bjuggu í Draumbæ á Vestmannaeyjum. Prcntað eftir handriti frá lokum 19. aldar. Greinargerð um börn sr. Jóns Austmanns er færð frá upphafi æfisögu til loka. Niður er felld greinargerð um börn sr. Sigurðar Jónssonar í Holti undir Eyjafjöllum (1700-1778) og syni Þórunnar Hannesdóttur Scheving af fyrra hjónabandi og örfá atriði önnur úr ættfræðilegum inngangi. Handritið var í eigu Sigfúsar M. Johnsen. Marbendill Einu sinni dróst marbendill á skip. Honum leiddist og langaði alltaf heim til sín. Loksins var farið með hann út á miðin, sem hann veiddist á. Áður en honum var sleppt, var sagt við hann: „Hvað er manni best?“ Hann svaraði: Kalt vatn augum, kvekt tönnum, lérept líkum, og láttu mig í sjó. Úr bréfi frá Einari Einarssyni frá Berjanesi, en honum sagði Guðrún Erlendsdóttir í Selvogi. 28 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.