Goðasteinn - 01.06.1975, Síða 34

Goðasteinn - 01.06.1975, Síða 34
við mikil hljóð í Ámunda félaga mínum. Hafði ég hendur fyrir mér og varð þess vís, að Ámundi var kominn hálfur út um tjaldhl.iðina, og voru rifnir þar upp hælar. Tók ég til og dró hann inn í tjaldið. Var hann þá viðþolslaus af kvölum. Þessu næst náði ég í ljósfærin og kveikti á kerti. Ámundi spurði mig, hvort ég treysti mér til að ná í vatn og hita handa sér kaffi ef ske mætti, að honum skánaði við það. Sjálfsagt var að reyna það, og ég staulaðist í myrkrinu mcð kaffiketilinn niður að Þjórsá, þar sem ég náði í vatnið. Heyrði ég alla leiðina hljóðin í Ámunda. Ég lífgaði eld í hlóðunum og hitaði kaffið á stuttri stund. Bar ég Ámunda það og tóku þrautirnar þá smátt og smátt að réna, cn það var eins og honum væri í svipinn þorrinn allur máttur. Hann sagðist hafa verið um það bil að festa blund, er honum þótti einhvcr ofurþungi leggjast ofan á sig og fylgdi nístandi kuldi. Jafnframt var tekið til við að draga hann út úr tjaldinu, og gat hann sér cnga vörn veitt. Að vonum varð ekki meira úr svefni þessa nótt. Að morgni var Ámundi ekki vinnufær. Hafði ég nóg að starfa allan daginn við að höggva, draga saman við og binda í bagga. Skreið Ámundi um og sagði mér til við að binda skóginn. Urðum við svo að eiga aðra nótt þarna. Bar þá ekkert til tíðinda. Enn var Ámundi ekki vinnufær. Varð ég að taka saman hestana og setja upp bagga og drögur. Gekk það vonum betur. Að lokum varð ég að hjálpa Ámunda á bak. Héldum við svo af stað, og gekk heimferðin að hætti og vana. Ekki komum við heim, fyrr en í myrkri. Ætlaði Eiríkur í Sandlækjarkoti þá að fara að leggja af stað til að leita okkar. Ámundi lá í nokkra daga og var lengi að jafna sig til fulls eftir ferðina, þó litlar ræður væru um það hafðar. Frá Sandlækjarkoti lá leið mín að Hæli, til Gests Einarssonar og Margrétar Gísladóttur. Fyrsta haustið mitt þar var ég enn sendur í skógarferð inn í Búrfellshálsa með Eiríki Einarssyni, öðrum vinnumanni á Hæli. Þangað var komið það snemma dags, að hægt var að viða á lestina fyrir myrkur. Þarna voru fyrir þrír Hreppamcnn, Jón Þorkelsson, Sigfús á Hofi og Oddur í Þrándar- 32 Goðasteinn
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Goðasteinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.