Goðasteinn - 01.06.1975, Side 36

Goðasteinn - 01.06.1975, Side 36
mjókkaði nokkuð upp, en tók ekki upp yfir fjárhópinn. Sást greinilegur ferill eftir það í sandinum. Fleiri höfðu orðið varir við eitthvað óhreint á þessum slóðum. Gengu sagnir um það, að ýmsum hefði ekki orðið næðissöm nótt framan í Búrfells- hálsum. Saga þessi er skráð eftir Guðmundi Guðmundssyni að Nönnu- stíg 7 í Hafnarfirði 1968. Guðmundur er fæddur 28. ágúst 1883. Hann er orðvar og gætinn, og hefur verið óvenjulegt þrekmenni. Saga hans minnir á einfætinginn á Þórsmörk, sem ýmsir urðu varir við og við áttu orðin, sem sögð voru við Sturlu í Lágev forðum: „Kringlótt eins og keraldsbotn og engin á táin“. Þ, T. Draumvísa Guðfinnu dóttur Sveins Alexanderssonar á Sólhcimum í Mýr- dal dreymdi, að maður kom til hennar og hafði yfir þessa vísu: Hann er að kalla á oss alla og iðran bjóða, með orðið snjalla og andann góða, einn part valla heimtir þjóða. Eftir handriti Sigfúsar M. Johnsen fyrrv. bæjarfógeta. Maður kominn úti er, ósa ljósa brekka, biður um að beina sér blöndusopa að drekka. 34 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.