Goðasteinn - 01.06.1975, Blaðsíða 44
Bjarni, að mig minnir, var elstur þeirra systkina. Varð hann prest-
ur á Utskálum en fór þaðan snögglega og til Ameríku. Jórunn þar
næst, dó um 20 ára úr slagaveiki. Magnús þar næst, mátti heita
fyrirtak ungra manna, orðinn snikkari yfir tvítugt og dó snögglega.
Árni er prestur í Miklaholti í Miklaholtshrepp. Anna var líka, varð
kona Páls Péturssonar frá Borðeyri og dó hún á útsiglingu til
Ameríku og Páll maður hennar nokkru síðar. Þuríður hét ein
þessara systra og kona Guðmundar Jakobssonar trésmiðs frá
Sauðafelli. Ágúst Hallgrímur er einn af þeim bræðrum og er í
Stykkishólmi, bókhaldari eða barnakennari. Þóra er yngst sinna
systkina og er kona Péturs Þórðarsonar frá Rauðkollsstöðum í
vesturhreppnum, og býr Pétur nú í Ólafsvík. Það 9. barn bróður
míns kom andvana. Þórarinn heitinn bróðir þótti ávallt skemmti-
legur og ráðvandur maður. Helgu á ég fyrir systur, og er hún
flutt austur í Mýrdal og giftist Högna frá Hrútafelli. Nú er Helga
í Görðum hjá Árna stjúpsyni sínum, ekkja, einu ári eldri en ég.
Þarna fer mæta vel um Helgu, því Árni er sæmilegur búmaður
og tekur vel til höndunum.
Nú er kominn langur kafli, sem mér kemur lítið við. Nú kom
að þe.im tíma, að ég fór burt frá bróður sínum og Ingunni konu
hans og hafði ekki sem best vit á að meta þennan mér óviðjafnan-
lega stað eins og vert var, því satt að segja, bý ég að þessari veru
minni hjá bróður mínum meðan ég lifi, ég fékk þar þessi ómetan-
legu gæði, sem var mín góða heilsa. Bróðir minn vildi ekki reka
mig út á ckki neitt heldur gefa mér að jeta og sjálfsagt nægileg
föt. Þetta átti ég að þiggja en gat þó ekki, heldur fór suður í
Holt og dvaldi þar tvö ár hjá Jóni Guðmundssyni á Hreiðri og
Helga í Ölversholtshjáleigu. Sótti Helgi um þær mundir nokkurn
heyskap í Safamýri, og komst ég þá í þá bestu slægju, er ég hef
slegið á æfi minni. Við Helgi komum þar um miðaptan um kvöld-
ið og slógum, sem eptir var dags og svo daginn eptir og hættum
kl. 6. Varð þessi heyskapur 40 heybandshestar. Ég fékk sæmilegt
kaup hjá þessum húsbændum mínum. So fór ég lengra suður í
Holtin, að Háfi, til Sigurðar, gamals manns, var á fyrri árum
sínum með betri búmönnum. Þar voru bæði heldur góðar engjar
42
Goðasteinn