Goðasteinn - 01.06.1975, Síða 51
optast nær og fékk 2 krónur um daginn. Einu sinni ætlaði ég að
gæða mér með því að fara með hest til að ríða, til að geta
verið e.ins og hinir piltarnir, sem ætíð riðu til og frá. Fékk ég mér
nú bleikskjóttan hest, traustan og góðan, með reiðtygjum og öllu
tilheyrandi og beiddi so fyrir hann með hestunum hinna. Nú á
sunnudagsmorguninn fór ég að taka út til vikunnar. Rétt áður
en ég lagði á stað, vissi ég af flösku við höfuðlag mitt. Þar var
því sem svarar peli af rommi, og saup ég vel á þessu og sveif á
mig, fór so um þcnnan sunnudagsmorgun að taka út til vikunnar,
en það var brauð, smér og kaffe. Ætlaði ég so að taka mér rétt
einu sinni vel til vikunnar af brennivíni, helst 2 potta, en þá
vantaði kútinn cn ekki annað í búðinni fyrir hendi en 2 kareplur
og tók þær þegar og fyllti af víni. Fór so með allt heim að Skál-
holtskoti. Varð nú kenndur til muna og ekki nærri í tíma ferða-
fær eins og hinir piltarnir. Varð því í þetta sinn að verða eptir
af vegagerðarmönnum mínum. Hestinn, er ég fékk lánaðan, vissi
ég heldur ekkert um. Leið so sunnudagurinn og mánudagurinn, að
Guðmundur vissi ekkert um vegagerð sína. Var þá samstundis
gerður út einn af félögum mínum að leita að mér dauðaleit og
fann mig lítið eitt kominn á stað úr Reykjavík með aðra kareplu,
en hina var ég áður búinn að gefa Sigurði smið, af því hann bar
fyrir mig jakka frá Stuðlakoti að Skálholtskoti og hina karepluna
fulla af brennivíni og ég með, augafullur. Þar að auki brá ég mér
til Jóns Guðmundssonar, þá blindfullur, en gat opt og tíðum látið
bera furðulítið á mér og eins var það, í þetta sinn. Sótti ég til
Jóns 4 krónur í peningum. Kcypti ég þá af Sigurði smið hcilmikið
af skeifna- og járnarusli, er mér gat ekkert orðið úr. LFppá þennan
máta er ófært að iifa og geta ekki tekið sinnaskiptum.
Eptir þessi vandræða viðskipti fór ég so fram af þessu að
gefa mig að vegagjörð minni. Hér mátti nú í þctta sinn sannast,
að eptir höfði hneigja sig limir, þar sem sjálfur forstjórinn, Jón
Ásmundsson að nafni, fór optast á stað úr Reykjavík með hálfa
flösku af brennivíni, en í þcirri sömu ferð var full tveggja potta
tunna. Náði hún að endast að hálfnaðri viku. Þurfti þá að sækja
meira so eitthvað yrði til að útenda vikuna. Ég útenti nú með
piltum þessa vegagjörð þá, er ég var í, og lá hún frá Árbæ í
Goðasteinn
49