Goðasteinn - 01.06.1975, Page 61
má kalla í senn píslargöngu og frægðarför góðs manns. Goða-
steinn þakkar Sigurði á Barkarstöðum hlutdeild hans í varðveislu
og prentun æviágripsins. Frekari fróðleiks um ævi Guðmundar
dúllara er að leita í Ævisögu Árna prófasts Þórarinssonar I:
Fagurt mannlíf, bls. 12-50, útg. Rvk. 1945.
TEIGSVÍSUR GUÐMUNDAR DÚLLARA
Á Barkarstöðum barst í tal
um bóndann merka,
engra getið afrcksverka,
cr þó gjörði höndin sterka.
Guðmund þann í Teigi ég tel
með tignum mönnum.
Stórum sá var oft í önnum,
ætíð þó með heiðri sönnum.
Með þeim bestu fór með fé
á fyrri árum,
af Rangárvallasýslu sonum.
Mér sýnist rétt að lýsa honum.
Baðstofuna byggði hann fyrst
og bæjarhúsin.
Ég hann kalla fyrrum frækinn,
fékk hann myllu sctta í lækinn.
Musteri skárra mun það vera,
Margrét sagði.
Annað ekki orð til lagði,
ansaði ég þá fljótt að bragði:
Malaði bæði mikið og vel
sú myllan góða,
það var ekki húsið háa,
heldur bygging ein sú lága.
Goðasteinn
59