Goðasteinn - 01.06.1975, Side 72

Goðasteinn - 01.06.1975, Side 72
rakin hér. Hann var mikiihæfur maður á marga lund, fjárafla- maður mikill, enda gerðist hann auðmaður. Hann fékk orð fyrir að vera nokkuð harður í viðskiptum og af mörgum álitinn ágeng- ur. Höfðingi gat hann verið heim að sækja í Hraungerði og bjó þar ríkmannlega. svo að útlendingar, sem þangað komu til hans, rómuðu viðtökurnar og góðan húsbúnað á prestssetrinu. En ekki var hann að sama skapi vinsæll af alþýðu manna. Af því eru sögur sem ekki verða raktar hér. Meðan Sigurður var prestur í Hraungerði og eftir að hann lét af prestsskap sótti hann lengi mjög eftir því að kaupa hinn svonefnda spítalafisk í nær öllum verstöðvum austanfjalls. Spítalafiskurinn var eftir fyrirskipun sýslumanna boðinn upp í verstöðvunum, vanalega eftir lokin (11. maí). Síðan stóðu sýslumenn skil á andvirðinu til biskups, cn það rann í Spítalasjóðinn, er var í vörslu biskups. Þessi háttur hélst lengi eftir að hinir gömlu spítalar voru lagðir niður t. d. Kaldaðarnesspítali. Mun svo hafa haldist, uns spítalasjóðurinn var lagður til læknasjóðs.ins og spítalafiskurinn var ekki lcngur krafinn af sjómönnum. Sigurður prestur Thorarensen reið löngum á uppboðin, þegar spítalafiskurinn var seldur, og var oftast hæstbjóðandi í hverri verstöð. Seldi hann fiskinn svo aftur, oft með góðum hagnaði. Hafði hann oft menn fyrir sig að bjóða í fiskinn, því að ekki komst hann sjálfur á öll uppboðin. Annað eftirfarandi bréfið varpar nokkru ljósi á þessi fiskikaup Sigurðar prests, en það er ritað til biskupsins Helga Thordersen. H.itt bréfið er til sýslumannsins í Árnessýslu, Þórðar Guð- mundssonar kammerráðs á Hjálmholti. Það bréf er einskonar aldarspegill. Kirkjurnar eru þá oftast vel sóttar hvern helgan dag af mannfólkinu en því fylgdu jafnan hinir dyggu förunautar, hundarnir af heimilunum og tóku stundum óbeinan þátt í guðs- þjónustugjörðinni með gelti og spangóli við klukknahringingarnar bæði fyrir og eftir embætti. Var það hvumleitt mörgum sóma- kærum manni og þá ekki síst sjálfum prestunum. Yfir þessu kvartar Sigurður prestur og heitir á yfirvaldið, Þórð kammeráð, að af- stýra þessum ósið. En hætt er við, að ástandið hafi lítið batnað við áminningabréf prests. Heimilishundarnir vildu löngum fylgja 70 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.