Goðasteinn - 01.06.1975, Page 80

Goðasteinn - 01.06.1975, Page 80
arleingdir, með því sem maður leggur til með hæð sinn.i, með öðrum orðum tólf álnir á sex álna staung". (Ó.D. íslenskar skemmtanir, Khöfn 1882-92, bls. 371). Byggðasafnið í Skógum á nokkrar fjallastangir en þó enga, er í öllu svari kröfum gamla tímans varðandi fyllstu lengd, og engin þcirra er með húna. Einn lausan húna á safnið frá Sæmundi Jóns- syni í Sólheimahjáleigu. Veglegar fjallastangir hittast cnn í not- kun á starfssvæði safnsins. Mesta fjallastöng byggðasafnsins, frá Suður-Vík í Mýrdal, er hálf fimmta alin á lengd. Sérstök gerð af göngustaf fjármanna, klofakerling er utan við svið þessa þáttar. Atgcirsstafir samsvöruðu í mörgu fjallastöngum. Þeir héldust lcngst á Vestfjörðum, en sagnir um þá eru úr fleiri landshlutum, m.a. úr Mýrdal. Einkunn þeirra er broddurinn með þverjárni, sem endar annarsvegar í öxi en hinsvegar í króki. Hefur hann sterkan svip af því vopni miðalda, sem nefndist atgeir eða arn- gcir. Stafbroddurinn gegndi þríþættu hlutverki, broddurinn sjájfur gekk niður í hjarn og ísa á göngu, með öxinni hjuggu menn spor í brattar fannir, og krókurinn veitti viðnám, er mcnn létu sig renna niður brattar fannir. Byggðasafnið í Skógum á brodd eða atgeir úr atgeirsstaf, kominn að gjöf frá kunningja mínum, Kristjáni Guðmundssyni frá Otradal, og ber að líta á hann sem fulltrúa vestfirðinga á safninu. Lengd broddsins er nú 31,5 sm, bilið milli axarmunns og króks 16,3 sm. Stangir allra gerða voru hið besta hjálpartæki þeirra, sem fóru um ótrygga ísa og miðuðu þykkt þeirra m.a. við það hve greitt stangarbroddurinn gekk niður úr ísnum. Einhöggur is var varhuga- vcrður. Arnlaug Tómasdóttir í Vallnatúni (f. 1860) sagði mér frá kirkju- göngustöfum sem almennri cign kvenna í hennar ungdæmi. Hún hafði átt staf langömmu sinnar, Þuríðar Sighvatsdóttur á Ysta- skála, scm var með fallega renndum hvalbcinshún á. Hans sér nú engan stað. Minjar frá einum slíkum staf sá ég í æsku koma upp úr bæjarhólnum í Vallnatúni. Var það vel skorinn tréhúnn en orð- inn feyskinn mjög. Eftir honum smíðaði ég annan úr bcini og setti við staf. Síðar heyjaði ég mér fróðleik um kirkjugöngustafi kvenna hjá mörgum, m. a. Kolbeini frá Úlfljótsvatni, sem gaf mér einn 78 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.