Goðasteinn - 01.06.1975, Side 96
til Þórsmerkur á hinu fullkomna og flestum tiltæka farartæki nú-
tímans, bílnum, í góðra vina hópi, hverf ég um stund á vit minn-
inganna til ársins 1911 í annarri viku þorra, er ég þrammaði
í fyrsta sinn hér eftir aurunum, ásamt 6 öðrum, á leið til Suður-
ncsja. Þá var stórrigning á landsunnan. Nauðsynjar okkar bárum
við á herðunum, óðum hverja vatnssprænu, sem væð var, en
vorum ferjaðir yfir aðrar. Eigi voru nema tvær ár brúaðar á leið
okkar, þær Þjórsá og Ölvesá, og ef til vill tveir eða þrír lækir,
cr vestur kom í sveitirnar.
Við héldum þá til ferjustaðar á Þverá uppi í Fljótshlíð, og var
það lykkja á leið miðað við þráðbeinar hraðlínur, sem nú er
skotist eftir, en þátíðarmenn töldu ekki eftir sér sporin fyrir keld-
una. Ofsahraði og hávaði nútímans var fjarlægur okkur. Þvílík
breyting á stuttum tíma! Undrastuttur finnst mér hann, er ég
lít til baka.
En hvað er ég að rifja upp í dag svona hversdagslegan viðburð
frá árinu 1911? Þessi ferð var ekkcrt sögulegri en margar slíkar,
er farnar voru á þeim tíma, fyrr og síðar. Önnur ferð er mér ofar
í huga. Hún var farin sumarið 1839 einmitt um sömu slóðir og ég
ek nú í dag. Að sjálfsögðu var ég þar ekki þátttakandi, þótt gam-
all sé, en sagan lifði að vonurn í minningu hennar, sem ferðina fór.
Ég ætla að reyna að glevma stað og stund dagsins í dag og horfa
um augnablik á mynd þessa löngu liðna tíma.
Hér kemur þá á móti mér ung kona á farartæki síns tíma, hest-
inum. Hcnni er sýnilega mikið í hug, hún hvetur hestinn, sem
mest hún má, og lítur hvorki til hægri eða vinstri, því dagurinn
verður að endast vel. Hver er þessi unga kona? Jú, ég kannast
við hana. Hér fer Vilborg Stígsdóttir frá Staðarholti í Meðallandi,
föðurmóðir mín, þá 26 ára gömul, og má láta sér detta í hug, að
eigi mundi hún fara erindisleysu heiman um háannatímann. Þá
voru enn eigi lögboðin sumarfrí.
Ég mun nú skýra nánar frá tildrögum að ferð ömmu. Þetta ár,
1839, er Vilborg heitbundin manni þeim, er Jón hét Gissurarson.
Voru foreldrar hans Gissur Jónsson og Sigríður Bjarnadóttir bú-
cndur í Efriey. Gissur dó 2. febrúar þetta ár. Var Jón elstur barna
þeirra og nú fyrirvinna móður sinnar. Þetta surnar fór hann með
94
Goðasteinn