Goðasteinn - 01.06.1975, Side 98

Goðasteinn - 01.06.1975, Side 98
vol'u til brúðkaups. Hið mikla vald vígði hann til moldar í stað brúðar. Gcta má nærri um hverju sári amma var særð. Fimm árum áður hafði hún orðið að sjá á bak heitbundnum æskuvini sínum, miklum efnismanni, er Magnús hét Ásgrímsson, hann þá 20 ára en hún 21 árs. Dauða hans bar sviplega að. Hann var hringjari í Langholtskirkju. í messu hinn 17. ágúst 1834 gegndi Magnús starfi sínu, og bar ekki til tíðinda þar til hringja skyldi til messu- loka. Komst Magnús þá aðeins upp í neðstu stigaþrep. Þar hneig hann niður og var örcndur, er að var komið. Um þessi sár greri áreiðanlega aldrei, sem að líkum lætur. Amma átt.i síðar eftir að líða mörg og stór áföll. Allt bar hún það með einstakri þolinmæði og jafnaðargeði, byggt á óbifanlegri guðstrú og trausti. Hún átti góða elli í skjóli foreldra okkar, elskuð og virt af öllum, hélt máli og minni til síðustu stunda, sjóndöpur síðustu ár en aldrei. alblind. Hún andaðist í svefni aðfaranótt 23. febr. 1912 og vantaði þá 2 mánuði á 99 ár. Ein vísa Seðill þessi flytjist frí fram um veldið klaka, má honum krækja mundir í mærin æru spaka, er blóma og sóma ber, nift.in klæða mjög ágæt, Marín Jónsdótter. Haflar vessa hlökkin mæt á höfði fleytir sér. Eftir austfirsku handriti frá 1849. 96 Godasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.