Goðasteinn - 01.06.1977, Page 104
madur geymdi lukkupening sinn í péturspungi, egghylki skötunnar
og sama tilgangi þjónaði fuglsklóarbudda.
Austur á Brekku í Lóni sá ég arnarklóarbuddu, sem Elín Ólafs-
dóttir frá Hnausum í Meðallandi gaf frænda sínum, S.ighvati Davíðs-
syni- í henni var varðveittur enskur gullpeningur og átti þetta að
styðja að peningaheill eigandans. Gæsaklóarbudda var gædd sama
mætti og sumarið 1977 bar þann fágæta grip á fjöru byggðasafnsins.
Le.ið mín lá að Langholti í Meðallandi og húsfreyjan þar, Margrét
Einarsdóttir, afhenti mér gæsaklóarbudduna, sem Valgerður Ólafs-
dóttir frá Steinsmýri gerði um 1870. Þetta er fuglsfittin öll, upp að
leggnum og gerður úr belgur eða pyngja. Klærnar eru á sínum stað
og opið vel bryddað með lérefti. Fuglsklóarbudda stýrði því aðeins
peningaheill að hún væri aldrei tóm.
Fengsæll maður er nefndur aflakló. Jón Eyjólfsson í Moldnúpi
undir Eyjafjöllum sagði mér frá þeirri aflakló, sem orðið ætti að
vera dregið af. Sigurður Sigurðsson, seinna auknefndur hinn ríki,
bóndi á Rauðafelli undir Eyjafjöllum (d. 1832), lamaði hegra með
skoti. Síðan nam hann — eða annar í stað hans - lappirnar af fugl-
inum lifandi og sleppti svo. Það var ógæfuverk, en lappirnar gerðu
hvern þann, er þær hafð.i undir höndum, auðugan. Önnur dró undir
sig afla til lands en hin til sjávar. Fiskimaður hafði hana í skó sín-
um, og hún stakk hann í fótinn, þar sem fiskur var undir. Sigurður
gaf Magnúsi bróður sínum, síðar bónda á Leirum, sjávarklóna. Hann
gerðist auðugur af fiskifangi og nefndist hinn ríki eins og bróðir
hans.
Dóttursonur Magnúsar á Leirum var Þorvaldur Bjarnarson á Þor-
valdseyri (1833-1922). Hann hófst frá fátækt til mikilla auðæfa og
„hrapaði af hátindi auðæfanna niður á jafnsléttu öreigans“ eins og
séra Jakob Ó. Lárusson í Holti sagði yfir moldum hans. Þjóðtrúnni
varð ekki skotaskuld úr því að skýra þetta. Hún sagði fullum fet-
um að Þorvaldur hefði eignast aflaklær- Lét hann Gísla nokkurn
Gíslason skilja þær frá fugli og missti svo af auðnuleysinu en hreppti
auðsældina, og hún skiíd.t ekki við hann, fyrr en Einar Benediktsson
komst í spilið. Einar frétti af aflaklónum og sat sig ekki úr færi með
að spyrja Þorvald um þær. Þorvaldur sá ekki við valdsmanninum og
fékk honum klærnar í hendur til skoðunar. Þá glataði Þorvaldur
102
Goðasteirm