Goðasteinn - 01.06.1977, Blaðsíða 108
túttur smíðaðar úr hrútshorni, en á síðustu öld gegndi barnspípan
hlutverki túttunnar. Pípan var fengin úr fuglsvæng. Um efri enda
hennar var vafið píputrafinu en neðri endinn látinn hvíla niðri í
aski eða nóa og svo sat móðirin með barn sitt og lét það sjúga
mjólkina upp um pípuna- Sama pípa gat í viðlögum verið höfð til
þess að næra langt leitt fólk á sóttarsæng. Guðrún Markúsdóttir frá
Bakkakoti í Meðalland.i (1873-1965) gaf byggðasafninu í Skógum
barnspípu, sem fylgt hafði henni um langa ævi. Er hún svo sem
vera ber úr álftarvæng. Hef ég fyrir því góðar heimildir úr Meðal-
landiað þar var talið máli skipta að barnspípan væri úr álftarvæng,
því álftin syngur fegurst fugla og barnið skyldi fá fagra rödd. Vel
var að því gætt að taka ekki barnspípuna úr súluvæng, en súluhræ
rak stundum á fjörur. Sú var trú gamalla manna að súlan væri mál-
laus.
Helga Sigurðardóttir í Stóru-Borg undir Eyjafjöllum (f. 1887)
sagði mér að fyrr hefðu sveinbörn verið nærð með þeim hætti í
fyrsta sinn að barnspípunni var stungið gegnum gatið á eyrugga-
beini úr fiski. Skyldu þau þá verða sjóhraust, er þau risu á legg.
Rökin fyrir þessu liggja í helgi eyruggabeinsins, sem um eru gamlar
sagnir. Eyruggabeinið nefndist sumsstaðar blóðstemmubein og eitt
ráðið við hrossasótt var að hnýta eyruggabein í ennistopp hests, sem
var hrjáður af henni.
Lukkustein lét mér í té mætiskonan Guðrún Halldórsdóttir
frá Sandhólaferju (f. 1886) en henni gaf gömul kona á Ferju, Ólöf
barnabarn séra Þórhalla Magnússonar. Ber hann safnnúmer 2355.
Ólöf varðveitti steininn í svonefndum lukkubelg, sem stöku sinnum
fannst í líknarbelgi í kýrhildum. Kuflinn var ómóta stór og manns-
fingur. Hann er nú glataður. Steinninn er örsmár, glær og egglaga
og kvað vera fundinn á Landeyjasandi. Steinninn og belgurinn til
samans áttu að veita manni hamingju.
I æsku heyrði ég talað um skruggustein og Sveinn Tómasson í
Vallnatúni (1856-1931) sýndi mér skruggustein, sem var raunar
vatnsnúinn, gljúpur hraunmoli, rauður að lit og flaut í vatni.
Skruggustein hef ég síðar fundið í gömlu húsi- Það var gömul trú
að skruggusteinninn smygi þar í jörð, sem eldingu sló niður. Hann
átti að koma þar upp að 300 árum liðnum og var þá óskasteinn
106
Goðasteinn