Úrval - 01.05.1979, Side 14
12
ÚRVAL
Talsérfræðingarnir eru áfjáðir í að
komast að því hvað þessi sérkennilega
hljóðasamröðun þýðir, því þeir hafa
gengið úr skugga um að hún þýðir
sannarlega eitthvað. Telpurnar hafa
fundið upp sitt eigið tungumál.
Hvað var það á lífsferli þessara
tveggja bláeygu, mjúkhærðu telpna,
sem kom þeim til að mynda sitt eigið
tungumál? Hvers vegna lærðu þær
ekki að tala ensku, eða þá þýsku, sem
er mál ömmu þeirra og barnfóstru? Ef
mál þeirra er aðeins barnamál, hvers
vegna slepptu þær því ekki fyrir
almennt mál umhverfisins eins og
flest önnur börn? Þó er mikilvægasta
spurningin þessi: Verður tungumál
þeirra til þess að kenna heiminum
eitthvað um upphaf og tilkomu
tungumáls yfirleitt?
Þegar Grace og Virginia fæddust í
Columbus í Georgíu árið 1970, voru
foreldrarnir, Tom og Chris Kennedy,
vanbúin að mæta þeirri fjárhagsbyrði,
sem tvíburar voru. Svo fyrst í stað
urðu systurnar að deila öllu með sér
sem eitt barn væru, þar á meðal lítilli
vöggu, þar til úr greiddist. Sex
mánuðir liðu, þangað til þær fengu
sitt rúmið hvor.
Daginn sem þær fæddust, fékk
Virginía áköf krampaköst. Daginn
eftir fékk Grace samskonar krampa.
Prófað var hvort þær kynnu að hafa
vatnshöfuð. Prófunin sýndi svo ekki
vera. Telpurnar héldu áfram að fá
svona flog annað slagið fyrsta hálfa
árið.
Þegar þær voru tveggja ára, var
heilalínurit tekið af þeim til að
kanna, hvort þær hefðu orðið fyrir
heilaskemmdum. ,,Niðurstaðan varð
sú, að þær væru eðlilegar, en
læknarnir sögðu ógerlegt að segja til
um hvort þær myndu þroskast
eðlilega, fyrr en þær yrðu fimm eða
sex ára, ’ ’ segir Tom Kennedy.
Þessi varnagli verkaði óbeinlínis
systrunum í óhag. Tom og Chris gátu
ekki gleymt því, að dætur þeirra voru
hugsanlega vangefnar. Oft gripu þau
til þessarar skýringar, þegar þeim
þóttu framfarir dætranna hægar.
Fjárhagsins vegna neyddust bæði
Chris og Tom til að vinna fullan
vinnutíma utan heimilis, svo Gracy
og Ginny voru langtímum einar með
ömmu sinni. Hún dekraði við þær og
sá fyrir öllum líkamlegum þörfum