Úrval - 01.05.1979, Page 28
26
ÚRVAL
fundu holurnar. Friðunin tókst mjög
vel. Enn skyndilega og óvænt urðu
bjöllubýflugurnar á friðaða svæðinu
fyrir árás óvina. Það voru maurar.
Það var hryggileg sjón, sem mætti
augum Grebennikovs, þegar hann
skoðaði eitt bjöllubýfluguhreiðrið,
sem var grafíð ofan í jörðina í grennd
við mauraþúfu. Honum skildist, að
bjöllubýflugur og maurar gátu ekki
búið sem nágrannar. Þess vegna gróf
hann upp úr jörðinni nokkur hreiður
og kom þeim fyrir á stöng, sem hann
hafði rekið niður í vatnsfyllta holu.
Eftir skamman tíma komst Viktor að
raun um, að skordýrin undu sér þar
jafnvel enn betur heldur en niðri í
jörðinni.
Þetta var forvitnileg uppgötvun.
En Viktor gekk lengra. Hann bjó til
enn frumlegra hús fyrir skordýr sín —
smíðaðan 20 fermetra skála.
Tilraunir Grebennikovs vöktu
áhuga vísindamanna. Honum var
boðið að hafa yfirumsjón með
skordýrasafni Efnafræðistofn-
unarinnar í Novosibirsk. Þar kom
hann á fót þriðja bjöllubýflugna-
verndarsvæðinu. Jafnframt hefur
■ hann að beiðni vísindamanna í
Akademigorodok — háskólaborg í
grennd við Novosibirsk — flutt fyrir-
lestra um skordýr. Vísindafélagið
opnaði sýningu á teikningum hans,
sem síðar öfluðu honum heiðurs-
merkis og heiðursskjals frá heims-
þingi um plöntuvernd.
Við sitjum í íbúð Grebennikovs. I
gegn um stóran glugga sé ég birki-
lund, þar sem friðunarsvæðið er.
Grassvörðurinn þar úir og grúir af
skordýrunum hans.
,,Svo nú eru til þrjú
bjöllubýflugnafriðunarsvæði? ’ ’ sagði
ég-
,,Nei, þau eru þegar orðin fimm.
Stúdentar, sem stunduðu verklegar
æfíngar undir umsjá minni hafa
komið upp griðlandi við Baikalvatn.
Og annað verndarsvæði fyrir bjöllu-
býflugur hefur risið upp fyrir
frumkvæði vina nemenda minna í
Akademgorodok.” ★
Ein af frægustu útflutningsvörum Trinitad er súkkulaðið
Angostura sem hefur verið framleitt af sömu ættinni frá árinu 1824.
Leyniuppskriftina kunna aðeins fjórar manneskjur og árum saman
var ekki beinlínis farið eftir uppskriftinni heldur var súkkulaðið
smakkað til. Að lokum var svo formúlan skrifuð niður, blaðið sem
hún var rituð á rifið í tvennt og helmingarnir geymdir sinn í hvorum
banka.
Þeir fjórir, sem kunna uppskriftina, ferðast aldrei með sama
farartæki og aðeins þeir einir mega koma inn á staðinn þar sem
blandan er gerð.