Úrval - 01.05.1979, Page 56

Úrval - 01.05.1979, Page 56
ÚRVAL 5<i ólguðu af hávæaim mávum með klofin stél, en þunglamalegar súlur og brúnir pelíkanar á flskveiðum stungust eins og djúpsprengjur í hafið. Meðan binan entist köfuðum við með stútgrímur rétt undir yfirborðið í krystalstærum sjónum, sem iðaði af litlum fiskum með alls konar lögun og lit. Hér hafði náttúran látið sér fátt finnast um þá ævafornu aðferð lifsins til að komast af, að hafa lit tegund- anna sem allra líkastan umhverfinu. Þess í stað var svo að sjá sem hún gerði sér far um að auglýsa tegund- irnar sem allra mest; þetta var eins og keppni um skrautlegustu ljósaskiltin. Niðri undir botni var fyrirferðarmikil vera á ferðinni og upp af henni stigu loftbólur. Það var Max, í froskmanna- búningi, og áður en langt um leið klauf hann hafflötinn og kom upp með tvo stóra humra í kvöldmatinn. Nákvæmlega klukkan 6 hneig sólin ofan fyrir sjóndeildarhringinn (við miðbaug eru dagur og nótt nákvæm- lega 12 tímar ár út og ár inn) og á örskammri stund hjúpaði flauelssvart myrkrið okkur. Við sváfum á þilfarinu og lögðum svo upp að nýju í dögun. Um hádegisleytið lentum við í Puerto Ayora, stærsta þéttbýli eyjanna (þar búa 800 manns) og héldum af stað, fótgangandi, eftir mjóu slóðinni sem liggur til Darwin stövarinnar. Við stöðina starfa ecuadorbúar, bandaríkjamenn og evrópubúar — en ráðstöfunarfé stöðvarinnar árið 1977, ári áður en við komum þarna, var aðeins 200 þúsund sterlingspund (samsvarandi kr. 129.670.000 á gengi þýðingardags). Af þessari upphæð kemur fast að helmingur frá ríkissjóði Ecuador, en afgangurinn frá sjóðum og framlögum um allan heim. Því, eins og Craig MacFarland, fyrrverandi framkvæmdastjóri stöðvarinnar sagði: „Stöðin er mikilvægt alþjóðlegt tæki til þróunar vísindaþekkingar. Asamt með Þjóðgörðum Galapagos er hún undirstaða alls rannsóknarstarfs á Galapagoseyjum. ’ ’ Við sáum í stóru gerði bak við húsakynni stöðvarinnar hve vel hefur tekist til með starfið. Þar mátti sjá tegundir Galapagosskjaldbakna skjögra um eins og forsögulega skrið- dreka, maula kaktusablöðkur og skvampa í grunnum pollum. Þessar skjaldbökur eru taldar runnar upp í Suðurasíu fyrir um 70 milljónum ára. Þær geta orðið 1,5 metrar á lengd og um 250 kg á þyngd. Þær eiga enga ættingja nær en í kóralrifjum Indlandshafs, og enginn veit hvernig þær bárust til Galapagos- eyja. Þær eru feimnar og óáreitnar, og það hafði næstum riðið þeim að fullu. Þessar landskjaldbökur eru frá- brugðnar öðrum dýrum að því leyti, að þær geta lifað heilt ár eða jafnvel lengur án þess að fá fæðu eða vökvun, og það er hægt að stafla þeim eins og eldiviði í skipalest og geyma þær þannig glaðlifandi. Þannig enduðu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.