Úrval - 01.05.1979, Side 66

Úrval - 01.05.1979, Side 66
64 L'Rl'AL ég drakk. svo fór ég í ískalt bað. Hlœðu, buslaðu og frussaðu, Robbie D. 75. dagur. Þetta var merkilegur dagur, því hann færði mér herra Eddie. Nokkur bílhlöss af innfsfeddum úr nýlendu þar skammt frá komu um kvöldið þangað sem ég hafði sest að. Ég gaf þeim te í lítratali, og meðan við skröfuðum fór ég að taka eftir herra Eddie: lág- vöxnum manni, aðeins lítið eitt hærri en ég, sem er 152,5 sentimetrar, hnarreistum, andlitsfríðum með undursamlega tjáningarfullar hendur. Næsta morgun ákváðu gestir mínir að einhver þeirra ætti að fylgja mér til Pipalyatjara, tveggja daga ferð. Ég gætti kurteisi og sagði ekkert, heldur lagði bara af stað — og litli, gamli maðurinn kom á eftir mér. Ég sneri mér við, og við virtum hvort annað fyrir okkur. Þvílíkur gáski, dýpt, líf og reynsla í augum hans! Einhverra hluta vegna fórum við að hlæja. Við hlógum í fímm mínútur, svo benti hann á sjálfan sig og sagði „Eddie”. Ég benti á mig og sagði ,,Robyn”. Allan þann dag og næsta ræddum við saman með lát- bragði, bendingum og brotum af pitantjatjara eða ensku, og hlógum okkur máttlaus hvort að annars skrípalátum. Ég held ég hafi aldrei á ævinni skemmt mér jafn vel. Svo komum við til Pipalyatjara. Þegar ég bjóst til að halda áfram til Warburton, 290 km beint í vestur, eftir þriggja daga hvíld, tilkynnti herra Eddie að hann ætlaði að koma líka. 80. dagur. Við lögðum af stað, og eftir smáspöl heimtaði herra Eddie að við legðum á okkur krók til að tína pituri, fíkniplöntu af tóbakstegund, sem innfæddir tyggja. Við leituðum hljóð í nokkra klukkutíma. Ég fór að velta því fyrir mér, hvort við myndum nokkurn tíma komast til Warburton. En herra Eddie mældi ekki tímann, hann lifði í honum. Smám saman fór ég að slaka á og njóta umhverfisins. Það var ekki fánýtasta lexían, sem þessi fágæti, gamli maður kenndi mér. 94■ dagur. Við skildumst í Warburton, herra Eddie og ég. Mér finnst enn, að þessar þrjár vikur sem við vorum saman hafi verið hámark alls ferðalagsins. En nú var hættu- legur kafli framundan — tæplega 600 kílómetrar eftir Gunbarrel þjóðleið- inni yfír erfiða eyðimörk. Fáir leggja vélknúin farartæki á Gunbarrel leiðina, og ég sá auðveldlega hvers vegna. Vegurinn var ekkert annað en tvö þröng hjólför. 112. dagur. Þegar ég var komin hálfan mánuð og 350 kílómetra inn á Gunbarrel eyðimörkina, átti ég erfiðan dag. Þegar fyrsta dagskíman braust undir augnalokin, fann ég að eitthvað var að, eitthvað vantaði: Hljóminn af úlfaldabjöllunum! Zeleika, Goliath og Bub voru horfin; aðeins Dookie var eftir af því hann var meiddur á fæti.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.