Úrval - 01.05.1979, Blaðsíða 76
74
ÚRVAL
rauninni var hann óvenju lágvaxinn,
líklega innan við 160 sentimetrar á
hæð. Hann er sagður hafa verið
fríður, með hátt enni, beint nef,
þvera höku — og hann var yngstur
allra mikilla sigurvegara fyrr og síðar:
Konungur Litlu Asíu 22 ára og Persíu
að auki 25 ára.
Hann var aðeins 32 ára, þegar hann
lést árið 323 fyrir Krist, en hafði þá
komið sér upp heimsveldi sem náði
frá því sem nú er Júgóslavía til
Indlands, þar með talin, ýmist að
fullu eða hluta: Búlgaría, ísrael,
Egyptaland, Lýbía, írak, íran,
Afganistan og sneið af Sovétríkj-
unum.
Meira en hálfu þriðja árhundraði
síðar grét Júlíus Sesar þegar hann las
hve miklu Alexander hafði áorkað á
unga aldri; hann taldi víst að sjálfur
væri hann einskis verður í þeim
samanburði.
Faðir Alexanders, Filppus
konungur, var þvílíkur hernaðar- og
stjórnmálasnillingur, að sagan hefði
sennilega kallað hann Filippus mikla,
hefði ekki sonurinn orðið honum svo
langtum fremri. Filippus fágaði og
þjálfaði litla en öfluga herinn, sem
sonur hans átti síðar eftir að leiða,
gerði hið makedóníska konungdæmi
sitt að miðpunkti og beygði næstum
öll hin stríðandi borgríki Grikklands
undir sínastjórn.
Filippus valdi syni sínum kennara
af mikilli kostgæfni. Einn var aðdá-
andi spartversks sjálfsaga og kenndi
prinsinum þolgæði. Seinna lauk
vitringurinn mikli, Aristóteles, upp
öðrum víddum fyrir honum.
Siðfræði, heimspeki, stjórnmála-
vísindum, grasafræði, líffræði, sögu,
bókmenntum — og allt þetta gerði
Alexander að menntaðasta þjóð-
höfðingja margra alda. Á nóttunni
hafði hann tvennt undir koddanum:
Rýting til að gera varist laun-
morðingjum og fágætt eintak af
Illíonskviðu Hómers, sem Aristóteles
hafði skrifað upp handa honum með
sérstökum athugasemdum.
336 f. Kr. var Filippus myrtur, og
um leið gerðu flestir undirsáta hans
uppreisn. Þeir töldu sig ekkert hafa
að óttast frá þessum barnskratta, sem
nú var orðinn kóngur. En Alexander
barði frá sér í allar áttir. Þepa var
miskunnarlaust jöfnuð við jörðu
(nema — og þar kom eitt af sér-
kennum Alexanders í ljós —
afkomendum og heimili Þebu-
skáldsins Pindar var þyrmt). Aðrar
grískar borgir gáfust upp fyrir honum
með lítilli sem engri fyrirstöðu.
Nú tók hann að undirbúa sigur-
göngu sína í Asíu. Hún átti að verða
til þess að refsa Persum fyrir innrás
sem þeir gerðu í Grikkjaveldi eitthvað
um 150 árum fyrr. Persía var auðugt
heimsveldi, voldugra en nokkurt
annað ríki í hinum þekkta heimi.
Alexander hafði líklega ekki nema
rúmlega 35 þúsund manna lið og sagt
er, að þegar Daríus III, persa-
konungur, frétti um þennan liðsöfn-
uð, hafi hann hlegið.
I lokaorrustunni við Daríus, þar