Úrval - 01.05.1979, Page 96

Úrval - 01.05.1979, Page 96
94 ÚRVAL kynni ef til vill að hafa rangt fyrir sér. ,,Þú braust eitthvað af þér í Ameríku. Eitthvað alvarlegt. Hvað gæti hún ímyndað sér að það væri? spurði ég í þúsundasta sinn. ,,Þú hefur sagt eitthvað, eða kannski hitt einhvern sem þú hefur ekki átt að hitta.” Það var inn í þetta innihaldslausa hjónaband, sem Andrei sonur okkar fæddist. Ég hafði ekki viljað eignast barn. Við bjuggum í blokk sem bæjarfélagið átti, 13 manns um einn vatnskrana — ekkert bað — til að þvo sér við og sækja vatn til heimilisnota. Nú hjalaði þetta kraftaverk sköpunar- innar í vöggu sinni og ég hafði andstyggð á sjálfum mér fyrir að vera reiður Líju fyrir að eignast hann móti vilja mínum. Líja hafði ekki minni andrúð á mér heldur en ég á henni og lá ekkert á því. Ég bar mun minni tekjur heim heldur en henni þótti mér skylt handa englinum hennar. Þeir einir höfðu góðar tekjur af ballettinum sem höfðu gjaldeyris- tekjur vegna vinnu á erlendri grund, og nú höfðu heimska mín og sviksemi komið t veg fyrir þann möguleika. Persðnulegur greiði Ballett sá ég í fyrsta sinn á ævinni í Vilníus í Litháen, þar sem faðir minn, Matvei Shúlman, var framkvæmda- stjóri Leðurvöru- og skófatnaðar- framleiðslu ríkisins. Ég var átta ára. Ballettinn var Þyrnirós eftir Tsjaikofski. Ljóminn og glæsi- bragurinn á sviðinu var einmitt það sem mig hafði dreymt um stðan ég heyrði fyrsta ævintýrið. Mig svimaði þegar ég hélt frá leikhúsinu þetta kvöld. Mörgum árum seinna varð ég jafn gagntekinn er ég kynntist ballettinum Petrushka. Þar hafði ég sönnun þess að gegnum ballett mætti túlka mikilvægustu tilfinningar og sannleik lífins. Æfingar fyrir sýningu Malíleikhússins á þessum ballett hófustsnemma árs 1961. Það sem ég sá sameiginlegt með mínu eigin ástandi og ástandi Petrushka gerðu hlutverkið að persónulegri túlkun. Við vorum báðir fórnarlömb meinlegra og óskiljan- legra afla. Ég held að ég hafi haft köllun til að túlka ,,litla manninn,” þann, sem enginn skildi. Hvers vegna var hann eilífur skotspónn yfirmanna sinna? Hvaða akkur var þeim í að valda honum óhamingju? Saklaus þrá brúðunnar Petrushka til þess að vera með dansmeynni opnaði augu mín fyrir örlögum allra dreymenda. Hvert sem ég leit, voru þeir hraktir og hrjáðir. Hver sýning var veisla fyrir sjálfs- píningarhvöt mína. Ég sat í hjallinum sem kallaður var heimili mitt og kom mér í Petrushka-skap með ákveðinni einbeitingu, nærðist á mótlæti mínu með listamannslegum öfgum svo ég trúði því beinlínis að það sem ég hafði mátt þola væri eins þjáningar- fullt — og ef til vill eins sorglegt — og það sem brúðan hafði orðið að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.