Úrval - 01.05.1979, Page 120
118
ÚRVAL
veskisgigt — gigt sem karlmenn fá að
því að hafa sífellt úttroðið veski í rass-
vasanum. í bréfi til New England
Journal of Medicine segir W. King
Engle, læknir, frá því sem hann kallar
,,kvenveskis-einkennaflækju” (-
purse syndrome). Þessi einkenna-
flækja stafar af því að konur ganga
gjarnan með þung veski í ól, sem þær
leggja yfir aðra öxlina. Ölin togar í
hálsvöðvana og efri axlavöðvana og
Ieiðir til vöðvakrampa og sársauka.
Þetta getur einnig leitt til óeðlilegrar
hálsstellingar og valdið þrýstingi á
taugarnar í hálsinum.
Lækningin er sú að hafa minna í
veskinu — eða það sem ennþá
öruggara er: Notið ekki svona
axlaskjóður.
ÆÐAKRAMPIVELDIIR HJARTA-
SLAGI
Snöggur krampi í hjartaæðunum,
að viðbættri fítumynduninni sem
dregur úr blóðrennsli til hjartans,
getur átt sök á mörgu hjartaslaginu
og blóðtappanum. Vísindamenn við
Písaháskóla á Ítalíu rannsökuðu
nýlega 76 sjúklinga með angina
pectoris (tak) sem átti rætur að rekja
til krampa í blóðæðum hjartans. Átta
þessara sjúklinga fengu slag meðan á
rannsókninni stóð eða litlu síðar. í
hverju tilfelli komust læknarnir að
þeirri niðurs'töðu að slagið hófst með
einkennum sem voru eins og þau er
vaida taki.
Vísindamennirnir telja, að
blóðrennslið til hjartans, sem fitu-
myndunin hefur þegar gen hægara,
lokist um stund við æðakrampann.
Þeir geta sér þess til, að blóðfrumur,
sem kallast plötlungar (platelets),
komi krampanum af stað. Það eru
plötlungarnir, sem gera það að
verkum að bióð storknar, en þeir
framleiða einnig efni sem heitir
þromboxan A2, sem veldur æða-
samdrætti.
I ritstjórnargrein sem fylgdi
skýrslu læknanna í Písa, er hún birtist
í New England Journal of Medicine,
segir Eugene Braunwald við Lækna-
skóla Harvard að þessi rannsókn gæti
leitt til þess að læknar gæfu
nítróglusserín og aspirín til þess að
draga úr líkum á æðakrampa og þar
með koma í veg fyrir hjartaslag.
Taksjúklingar fá nú yfirleitt nítró-
glusserín, en það getur víkkað
æðarnar og dregið úr líkum á
krampa, en aspirín á hinn bóginn
dregur úr því að plötlurnar safnist
fyrir í of ríkum mæli á einum stað.
AP
NÝTT MÖTEFNI GEGN RAUÐUM
HUNDUM
Matvæla- og lyfjastofnun
Bandaríkjanna hefur viðurkennt nýtt
mótefni — bóluefni — gegn rauðum
hundum. Samkvæmt skýrslu, sem
birt var í American Journal of
Diseases of Chindren kom í ljós við
könnun, að gamla bóluefnið, HPV-