Úrval - 01.08.1982, Page 112
110
ÚRVAL
mannahópa” um þessi mál. Þvert á
móti munu þessar rannsóknir leiða í
ljós lögmál hinna svoköiluðu krafta-
verka og þegar þau hafa verið skýrð
og skilin til fulls verður ekki um nein
kraftaverk lengur að ræða.
Hve langan tíma tekur að framleiða herraföt? Rúmar tvær klst.
— og þá er ekki átt við að þau séu saumuð úr tilbúnu efni á stranga,
heldur frá því að kindin er rúin og þar til herrafötin eru tilbúin.
Á þriðja áratug þessarar aldar fékk vefnaðarvörufyrirtæki í Hudders-
field nokkra sína röskustu menn og konur til að rýja kindur, kemba
og spinna ullina og vefa úr henni klæði. Síðan tóku klæðskerarnir við
og sniðu og saumuðu af krafti. Frá því að byrjað var að rýja kindurnar
og þar til fötin voru tilbúin liðu tveir tlmar og tíu mínútur. —B.B.
Ég var með Bill syni mínum 1 stórmarkaðinum þegar ég rakst á
gamla vinkonu mína. Ég var varla búin að kynna hana fyrir Bill þegar
hún ruddi úr sér fróðleik um sinn eigin son, Woody, sem hvorugt
okkar þekkti, hve góður íþróttamaður hann væri, hve marga verð-
launapeninga hann hefði fengið, hvað þjálfarinn hans hefði sagt um
hann og hver framtíðaráform hans væru.
Þegar við loksins gátum haldið áfram muldraði Bill. ,,Mér þætti
gaman að vita hvað það eru margir, sem þekkja mig ekki neitt en er
eins illa við mig og mér er við Woody.” — M.F.
Sköllóttur eiginmaður minn sat eitt sinn inni á veitingahúsi og ræddi
við sköllóttan kunningja sinn. Allt í einu kemur ungur maður með
mjög hrokkið hár að borðinu þeirra, sest hjá þeim, horfír til skiptis á
sköllóttu kollana á þeim og segir svo. ,,Ég ætti ekki að sitja hér, það
er svo áberandi.’’
Kunningi mannsins míns sneri sér rólega að þeim aðkomna og
sagði: ,,Við erum allir fæddir með jafnmikið af hormónum. Ef þú
vilt nota þína til að láta hárið vaxa þá þú um það. ’ ’
-J.V.
Leigubílstjórinn Robert Bender í Wisconsin hélt nýlega upp á þann
einstaka atburð þegar kílómetrateljarinn í bíl hans, Kadillak 1956,
taldi 1,6 milljón kílómetra (1 milljón mílur). Bender er hreykinn af
bílnum sínum, gljáfægðum, ryðlausum og í keyrslu á hverjum degi.
Bender er maður á sjötugsaldri og hugsar sér ekki að setjast í helgan
stein: ,,Og það sama gildir um bílinn minn, hann er reiðubúinn að
hefja næstu milljón mílurnar.
R.D.