Ársrit Torfhildar - 01.04.1987, Qupperneq 45
verður á. En fyrst þeir eru leiksoppar í tafli guðanna verður það
vafamál hvort hægt sé að tala um þá sem hetjur eða hugleys-
ingja. Það má líta á þá sem verkfæri í höndum skýsafnarans Seifs
sem á stundum viröist bera hag þeirra fyrir brjósti en verður á
öðrum stundum uppvís að grimmilegri kaldhæðni.
í Ilíonskviðu, þegar Akkilles er að eltast við Hektor og búa
sig undir að drepa hann, spyr Seifur guðina hvort þeir eigi nú að
bjarga Hektori eður ei, og þegar Aþena tekur illa í það segist
Seifur bara hafa verið að grínast. I upphafi tuttugasta þáttar
segir hann einnig:
Þú veizt, Landaskelfir, fyrirætlan þá, er mér er í huga um þá
menn, vegna hverra eg hefi kallað yður saman. Mér er annt
um þá, er þeir nú eru mjög svo á heljarþremi. Nú mun eg
sjálfur sitja hér kyrr á hrygg Ólymps, og horfa héðan að gamni
mínu; en farið þér, hinir guðirnir, þar til þér komið til Tróju-
manna og Akkea, og veitið hvorumtveggjum lið, eftir því sem
hverjum yðar stendur hugur til. (II.:399-400)
I báðum tilvikum óttast Seifur hins vegar forlögin sem jafnvel
hann hefur lítið sem ekkert vald yfir.
Til að skýra þennan veruleika kviðanna betur langar mig að
skipta honum gróflega í fimm svið. Á neðsta sviðinu er sú gerð
persóna er Aristóteles talaði um í riti sínu Um skáldskaparlist-
ina sem efnivið skopleikja, það er að segja tlminni menn." (Ari.:48)
Dólon í Ilíonskviðu er dæmi um slíka nienn, en best eru þeir
sýndir með Þersítesi í öðrum þætti. Seifur hefur hvorki gefið honum
vit né gjörvuleika, hann talar heimskulega, án siðsemi og jafnkítir
höfðingjunum. Odysseifur tugtar Þersítes til og gerir hann
hlægilegan. Sjálfur er Odysseifur ásamt flestum aðalpersónum
Hómers það sem Aristóteles kallar Mmeiri menn", harmleikja-
persónur. Yfir þær eru guðirnir hafnir en yfir guðunum ríkir Seifur.
Efst í þessum valdapýramída tróna hins vegar forlaganornirnar.
Eins og hinum minni mönnum ber að heiðra höfðingjana þá ber þeim
að heiðra guðina. Guðirnir verða að hlýða Seifi og Seifur forlögun-
um. Hvert svið reynir þó að streytast á móti; Þersítes stendur
uppí hárinu á höfðingjunum, Díómedes særir guði í orustunni,
Hera og Poseidon óhlýðnast Seifi og veita Akkeum lið en Seifur
43