Úrval - 01.03.1978, Blaðsíða 119
NO TA DU DA GINNÍDA G
117
HIN ÍOBOÐORÐ
SJÚKLINGA MEÐ
BANVÆNA SJÚKDÖMA
1. Talaðu um veikindin, notaðu rétt heiti þeirra. Það er ekki hægt
að gera lífið eðlilegt aftur með því að reyna að fela það sem að er.
2. Viðurkenndu dauðann sem hluta af lífinu. Hannerþað.
3. Líttu á sérhvern dag sem einn enn dag á lífí, guðsgjöf, sem beri
að njóta svo vel sem kostur er.
4. Gerðu þér ljóst að lífið er aldrei fullkomið. Það var það ekki
áður, og verður það ekki núna.
5. Biðstu fyrir, ef þig langar. Það er ekki vetkleikamerki, heldur
felur það í sér styrk þinn.
6. Lærðu að lifa við veikindi þín í stað þess að finnast þú vera að
deyja af þeim. Við erum öll deyjandi á einhvern hátt.
7. Reyndu að svæfa kvíða vina og ættingja. Ef þú vilt ekki
meðaumkun, skaltu ekki biðja um hana.
8. Gerðu allar skynsamlegar ráðstafanir í sambandi við fráfall þitt
— Erfðir, útför og þess háttar, og gakktu úr skugga um að
fjölskylda þín skilji ráðstafanir þínar og viti um þær.
9. Settu þér ný markmið, gerðu þér grein fyrir takmörkum þínum.
Stundum eru einföldustu hlutirnirí lífínu þeir ánægjulegustu.
10. Ræddu vandamái þín við fjölskyldu þína, þar með talið börnin,
ef það er mögulegt. Þegar öllu er á botninn hvolft, snertir
vandamál þitt aðra ekki síður en þig.
Orville Kelly í Fréttabréfi MTC
vanda að ganga með krabbamein.
Öllum kom saman um að það hefði
verið ósegjanlegur léttir að geta
þannig leyst frá skjóðunni og jafnvel
vakið ofurlitla bjartsýni að vita að
aðrir áttu við sama andskota að stríða
en tókst að láta hann ekki verða alls-
ráðandi.
Skömmu eftir að MTC var sett á
laggirnar birtust greinar um samtökin
í dagblöðum í Bandaríkunum,
Evrópu og Kanada, sem hrundu af
stað heilli skriðu af bréfum— og
símhringingum frá fólki með skæða
sjúkdóma og yfirvofandi dauða. Kelly
komst að því, að hræðsla, þunglyndi,
misskilningur, kynlífsvandamál, reiði
— jafnvel útskúfun — voru oft meiri