Úrval - 01.03.1978, Blaðsíða 34
32
ÚRVAL
væri eftir uppskurðinn og þreytt af
erfíðu ferðalagi steig hún út í aurinn
og studdi sig við bíldyrnar meðan
hún söng eins og fylgdarliðið krafðist.
Gracie hefur alltaf verið frábitin
því að valda öðrum vonbrigðum.
Þegar við vorum sest á svalirnar heima
hjá henni hjá stjörnuskildi (Aspi-
distru) sem plantað var þar til heiðurs
The Biggest Aspidistra in the World
(stærsti stjörnuskjöldur í heimi — en
svo heitir ein af plötunum hennar.
Hún er enn á markaðnum og kemur
fólki ennþá til að hlæja,), rifjaði ég
upp atvik sem kalla má dæmigert
fyrir hana á blómatíma hennar, þegar
allt sem hún aðhafðist var talið frétt-
næmt og hún hafði falið sig í hús-
vagni skammt frá Southport til að fá
að vera í friði fyrir blaðamönnum. Ég
var þá að byrja blaðamennsku og
hafði verið ráðinn í mánuð til reynslu
með verkefni að hafa uppi á hinni
týndu Gracie og hafa viðtal við hana.
Ég leigði mér flugvél og fann
húsvagninn á akri utan við borgina.
Snemma næsta morgun, þegar Gracie
var að taka til morgunverðinn, bar
mig að garði hjá henni. ,,Því miður,
engin viðtöl,” sagði hún þreytulega.
,,Gerðu það Gracie,” sagði ég
biðjandi. ,,Ef ég fæ ekki viðtal við þig
missi ég vinnuna.” Hún leit fast á
mig. , Jæja, þá, strákur,” sagði hún.
,,En fáðu þér fyrst í gogginn með mér
ogpabba.”
Núna, mörgum árum seinna,
þegar ég sagði henni að hún hefði
gefíð mér forsíðuviðtal — lífstíðar-
vinnu — hló hún við. ,,Þú varst
ágengur strákskratti. En ég er fegin að
ég skyldi ekki verða þér fótakefli.’ ’
Takmarkalaus samúð Gracie með
öðrum er líklega fegursti eiginleiki
hennar. Hún hefur líklega aflað
meira fjár til mannúðarmála enn
nokkur annar. Enginn veit, hve mikið
af hennar eigin tekjum hefur runnið
til góðgerðarstarfsemi, vina og beint
til dreggja mannlífsins. Capribúar
hafa sagt mér, að hún bregðist aldrei
þeim sem til hennar leita í nauð. En
þó eru þeir hrifnastir af því hvernig
hún gefur — feimnislega og
laumulega. Það minnir á bernsku
hennar í Rochdale, spunaborginni
með fátæka og höfðingslundaða
fólkinu. Eins og Gracie segir: ,,Þeir
áttu það til að laumast inn til
einhvers, sem var atvinnulaus, skilja