Úrval - 01.03.1978, Blaðsíða 17
15
HVERJUBÖRNINÞÍNEIGA RÉTTÁ OGHVERJUEKKI
fangið löngu eftir að þau eru byrjuð í
skólanum.
Foreldrarnir eiga að vera börn-
unum fyrirmynd sem stenst
samanburð við fyrri hegðun og
öryggi. Það vekur ótta hjá unglingi að
vita að hann ber ábyrgð á sjálfum sér,
það er eins og að vera í bremsulausum
bíl. Foreldri sem hefur hugrekki til að
segja ,,Nei” þegar aðrir foreldrar
segja ,,já” gefur tvennt til kynna:
,,Mér þykir vænt um þig og þó ég
viti að ég á reiði þína yflr höfðinu,
geri ég þetta af því ég vil ekki að þú
lendir 1 vandræðum. ’ ’
Börnin eiga líka rétt á trúarlegu upp-
eldi frá foreldrunum ef þeir
sjálfir hafa hlotið það og það
framkallað öryggi, styrk og þekkingu.
Ef trúaruppeldi þitt hefur fyllt þig
ótta, sekt og þú vilt ekki útbreiða
svona refsiarfleifð til afkomenda
þinna ætturðu að finna eitthvað 1 þess
stað. Sannfæringi mín er sú að
tilfinningaþroski barna þarfnist trúar-
bragða nú til dag, miklu meira en
nokkru sinni fyrr. Staðreynd þess að
svona margvíslegir trúarsöfnuðir
þrífast og spretta upp, er áreiðanlega
sú að unglingarnir þarfnast einhvers
af andlegu tagi í tilveruna.
Foreldrarnir eiga að kenna börn-
unum að vera sátt við líkama sinn og
veita þeim nægilega kynfræðslu sem
vinnur gegn þeim röngu upp-
lýsingum sem þau óhjákvæmilega
heyra á götunni.
Foreldrar verða að leyfa börnunum
eiga sín leyndarmál og virða þarfir
þeirra. Það þýðir að fá ekkihlutiað
láni, án leyfis, ekki forvitnast í dag-
bækur, gramsa í skrifborðsskúffum,
veskjum og ekki hlera símtöl.
Foreldri hefur engan rétt til að leika
CIA eða FBI. Þegar móðir segist lesa
dagbókina vegna barnsins sjálfs, segi
ég að ef hún verði að gera það til að
vita hvað sé á seyði, sé sambandið afar
lélegt.
Foreldrarnir verða að kenna börn-
unum að gera ekki of háar kröfur og
sýna þeim fram á hvað það er í
rauninni sem gefur framtíðinni gildi.
Þeir eiga að kenna börnunum að
virða rétt og skoðanir annarra. Bera
virðingu fyrir hinum eldri, kenn
urunum og settum reglum.
Gildismat verður ekki einungis
kennt, það verður að gefa fordæmi.
Þegar foreldrarnir halda loforði sín,
engu skiptir hve mikið það kostar,
kenna þeir börnunum að virða
mannlega samskipti. Faðir, sem
nappar verkfærum á vinnustað, og
móðir, sem á í þvottinum sínum
handklæði merkt hótelum, kenna
börnunum sínum að það sé allt í
lagi að stela. Barn sem er alið á lygi
lýgur. Barn sem er barið og póstrað
mun berja og pústra aðra. Unglingur
sem heyrir engan hlátur og sér enga
væntumþykju heima hjá sér á erfltt
með að hlægja og elska.
Ekkert barn biður um að fæðast. Ef
þú færir líf inn 1 þennan heim,
skuldarðu því dálítið. Og ef þú lætur
börnunum í té það sem þau eiga rétt
á, hafa þau verðmætt vegarnesti til að
miðla barnabörnum þínum af.