Bergmál - 01.09.1951, Page 7

Bergmál - 01.09.1951, Page 7
1951 ------------------------ eiganda í Alcobaca, sem pabbi vill endilega að ég giftist. En svo — rétt áðan —“ hélt Man- uela áfram, hlæjandi, „þá dreymdi mig elskhuga minn. Ó, — hann er guðdómlegur, Moura!“ „Þér verðið að afsaka, en ég veit ekki hvern af elskhugum yðar þér eigið við, senorita Manuela.“ „Mikill þorskhaus getur þú verið! Síðast liðinn mánuð hefi ég aðeins átt einn einasta elsk- huga — Leon Gaoyaz — flug- foringjann.“ „Er það hann, sem flýgur áætl- unarflug til allra mögulegra og ómögulegra staða í Brazilíu?“ „Já, það er hann, Moura. Ó — Leon er dásamlegur! Hef- urðu tekið eftir þessu sólbrúna andliti, hvað það er festulegt. Og hakan, hvað hún er karl- mannleg? Þú ættir að heyra hann hlæja — hátt og innilega eins og drengur, smitandi hlátri, ég kemst í gott skap, aðeins af því að sjá hann ....“ „Jú, jú mikil ósköp,“ greip þjónustustúlkan fram í, „en senor Gaoyaz á varla flugvélina, sem hann stjórnar, hvað þá meira. Hann er ekki rétti mað- urinn fyrir senoritu, sem alltaf ------------------ Bergmál hefir lif að í allsnægtum og mun- aði. Nei — farið heldur að ráð- um mínum — giftið yður senor Obidos uppi við Amazonfljótið! Hann á margar miljónir og „En maðurinn er kominn yjir fertugt, Moura!“ mótmælti Man- uela, og braut skurnið af egginu sínu. „Þú vilt þó líklega ekki. að ég giftist gömlum manni ....?“ „Barnaskapur, senorita! Mað- urinn er á bezta aldri, þegar hann er fertugur. Og svo er annað mikilsvert: peningarnir halda alltaf fullu gildi, en ástin kulnar!“ „Þetta er nú vafasöm kenning', Moura. Pabbi er nú þegar uppi- skroppa. Hann skuldar, meöal annars, senor Obidos 150.000 pesos — sem hann tapaði í síð- ast liðinni viku, þegar Obidos heimsótti okkur.“ „Nú — já, já. Og svo varð þessi auðugi ekrueigandi ást- fanginn í yður, senorita, — og bað um hönd yðar, allra náðar- samlegast, eins og svo fallega er komizt að orði í skáldsög- unum.“ „Já, og í gærkvöld, Moura — í gærkvöld næstum ógnaði pabbi mér — Moura. Heldur þú að það geti verið satt að pabbi sé sama 5

x

Bergmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.