Bergmál - 01.09.1951, Page 16

Bergmál - 01.09.1951, Page 16
Bergmál -------------------------- September ófullkominn stafagerð sýna gagnstæða persónu. D. Blátt áfram og rökvís: Jafn þrýstingur og jöfn stafa- gerð sýnir heiðarleika og rök- vísa persónu. Orðin fylgja þá línunum nákvæmlega, og allir minni stafir hnífjafnir að stærð. E. Veikgeðja: Það sýnir veik- geðja og mjög hrifnæma per- sónu. Þegar stafagerðin er mjög mis- munandi og ójafnir stafir, sem eru stöðugum breytingum und- irorpnir. Orðin fylgja ekki lín- unum og misjafnt bilið á milli þeirra. Slík skrift gefur greini- lega til kynna margvísleg og breytileg hughrif.----- Af þessum fáu dæmum má glöggt sjá, að það er mjög margt, sem felst í hönd mannsins og skrift. Miklu fleira en hið óæfða auga leikmannsins sér. Endir. Bjarni: „Veiztu það Grímur, að þeg- ar skornir eru úr þér hálskirtlar, þá er það kallað tonsillectomy, og þegar skorinn er úr þér botnlanginn, þá er það kallað appendectomy. En þegar skorinn er ofvöxtur af höfðinu á þér, hvað er það kallað?“ Grímur: „Það veit ég ekki. Hvað er það kallað?" „Bjarni: „Það er kallað: klipping." Pétur og Páll Þessi smásaga er eftir unga, íslenzka stúlku, og skrifuð í sjúkrahúsi í Reykjavík. Maður gengur eftir götunni. Hann er hraustlegur, gengur hratt og veifar stafnum, en það er áhyggjusvipur á breiðu enn- inu og augljós þreytumerki kringum hvöss, blágrá augun. Vindillinn fær óþarflega harð- leikna meðferð milli tanna eig- andans, og það kveður við tals- verður smellur í hvert skipti, sem stafurinn og gangstéttin mætast. Pétur er í vondu skapi. Ó, hvað hann vildi, að hann hefði náð í þennan ræfilslega póst- þjón, sem kom með þetta and- styggðar bréf í morgun. í hug- anum nýtur hann þeirrar ánægju, að sjá póstþjóninn velta niður tröppurnar eftir vel úti látinn löðrung. Hnefinn krepp- ist utan um handfangið, svo að hnúarnir hvítna. Pétur er reiður. Svei því, ef hann fer nokkuð vestur, þegar karlinn verður jarðaður. Hann hefði átt að senda honum fleiri gjafir og bera meiri umhyggju fyrir honum. En þá vissi hann 14

x

Bergmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.