Bergmál - 01.09.1951, Qupperneq 18

Bergmál - 01.09.1951, Qupperneq 18
Bergmál ------------------- Hvert fótmál kostar hann á- reynslu og jafnvel sársauka. En það er fögnuður í svip hans, sem einnig býr yfir leyndri ang- urværð og söknuði. Páll gleðst yfir því, að í dag er vor og sól- skin. Himinninn er dimmblár og óendanlegur eins og hugur manns. Hvít og smá skýin skyggja á einsiaka stað á blá- dýpi loftsins með æfintýralegri siglingu sinni um himinhvolfið. Þau eru eins og kvikmyndað æfintýri, óvenjulegt og dular- fullt, þar sem hamskiptin eru svo tíð og atburðirnir reka hvern annan með slíkum hraða og breytileik, að áhorfendurnir verða að hafa sig alla við til að geta fylgzt með. En Páll gengur hægt, og hann fylgist vel með. „En hvað ég var heppinn að komast út í dag“, hugsar hann og horfir á hesthöfuð í skýjun- um. Bara að hún, — svipurinn verður angurvær, — bara að hún Þóra litla frænka hans væri komin á fætur og út í sólskinið. Jafnvel þótt maður gangi hægt og finni svolítið til, þá mundi sjálfsagt margur þakka fyrir að geta gengið. Vafasamt, hvort Þóra litla mundi nokkurn tíma komast áfram hér eftir öðruvísi en í bíl eða ökustól. Maðurinn -------------- September þarna gengur hratt núna, en hver veit hvað lengi. Einu sinni hafði Þóra litla hlaupið og Páll klifrað í kletta, en nú? Aum- ingja Þóra litla, skyldi hann ekki fá að heimsækja hana bráðum. Hefði hann haft efni á að gefa henni fallegan blóm- vönd. Þóru litlu þótti svo vænt um blóm. Ef það væru nú blóm hér, sem hann gæti tínt. Blóm hér. Nei, blóm vaxa ekki á göt- unum í Reykjavík. En hvað fuglarnir syngja yndislega. Loks er hann kominn niður í fjöruna. Það eru ekki bekkir hér eins og í Hljómskálagarðin- um. Hann sezt á stein í f jörunni. Litlar öldur gjálfra við stein. Hann horfir — langt út í fjarsk- ann. Öldurnar stækka og fjar- lægjast og skella á svörtum sandinum, sem af hólnum, þar sem hann situr, lítur út eins og breið rönd. Gjálfrið vex og verður að hljómmiklum gný hins volduga úthafs. Einnig fjöllin eru orðin fjarlægari og snortnari af töfr- um sólskinsins og bláma lofts- ins. Og hér er allt fullt af blóm- um. Hesthausinn í skýjunum er orðinn að rauðum, reistum fák, sem kemur hlaupandi á móti 16
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Bergmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.