Bergmál - 01.09.1951, Side 30

Bergmál - 01.09.1951, Side 30
Bergmál ------------------- áhrif á hann. Hann varð þá létt- ur í skapi og áhyggjulaus, en í þetta skipti fór á aðra leið. Hann var enn í hinu versta skapi og úrillur mjög, en hann sneri heim að sumarbústaðnum rúmri klukkustund síðar. Ef að þessi frænka Önnu væri annað eins skrímsli eins og hinar frænk- urnar höfðu reynzt, þá yrði þessi eina vika í Fishcliff eins og heil öld. Það var nauðsyn- legt fyrir hann að vera kaldur og ákveðinn. í þessum, eða svipuðum hugs- unum settist Einar í einn garð- stólinn á grasflötinni framan við sumarbústaðinn, og starði út í loftið. Skyndilega heyrði hann ein- hverja hreyfingu aftan við sig, — inni í sumarbústaðnum — og þegar hann sneri sér við, bjóst hann við að sjá Önnu. En það var ekki Anna. Það var ung stúlka, sem Einar hafði aldrei séð fyrr. Hún var að koma út úr litla svefnherberginu og hafði auðsjáanlega fengið sér bað í sjónum. Hún var klædd þunnum rósóttum, sumarkjól, hamaðist við að þurrka blauta hárlokkana með baðhandklæði. Hún hafði mikið, dökkt hár, sem bylgjaðist niður á herðar. --------------- September „Halló!“ sagði hún og brosti um leið svo töfrandi brosi, að það hefði verið nóg til að fá hvaða kvikmyndaframleiðanda sem væri, til að fara á stúfana með samning. „Ég býst við að þú sért Einar?“ „Ja-á,“ svaraði Einar, loð- mæltur. Hann sá, að hún tók einhverja vota smátusku af grindverkinu og vatt hana. Það var sundbolurinn hennar. Einar hugsaði sér hana í þessum litlu sundfötum, og sú mynd, sem hann sá fyrir hugskotssjónum sínum var svo glæsileg, að honum fannst hann gæti horft lengi á hana. „Þú ert þó líklega ekki Betty?“ „Jú, ég held nú það,“ sagði hún, „þú hefir þá vitað að ég ætlaði að koma hingað?" „Já, já,“ sagði Einar ljómandi af ánægju. „Það var gaman, að þú skyldir koma, Betty. Hvar er Anna?“ „Þessi glæsilega, sólbrúna meyja, brosti ísmeygilega. „Hún rauk af stað upp í þorp- ið. Hún * var eitthvað æst yfir því að þú hefðir boðið einhverj- um kunningja þínum að koma hingað og dvelja hjá ykkur og hún hafði farið að jagast yfir því. Hún sagðist ætla að reyna 28

x

Bergmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.