Bergmál - 01.09.1951, Page 37

Bergmál - 01.09.1951, Page 37
1951 -------------------------- mér hefir þó tekizt sæmilega að hafa mig í gegnum það, þangað til í dag. Núna á ég sem sé að vera dómari í úrslita-sam- keppni milli fallegra ungbarna, og það er mér lífsómögulegt að gera.“ Ég fann til með honum. „Andstyggilegt hlutverk, það er það,“ sagði ég. „En geturðu ekki sagzt hafa orðið skyndi- lega veikur og látið einhvern hér gera þetta í þinn stað?“ Hann hristi höfuðið. „Mæður, sem koma með born sín á samkeppni, eru furðu illar viðfangs,“ sagði hann, „og mæð- urnar hér í Seacliff eru beinlínis lífshættulegar. Ég býst við, að það sé loftslaginu að kenna. Ef einhver borgarbúi hér ætti að vera dómari, mundu mæður allra barnanna, sem ekki fengju verðlaun, gera aðsúg að honum og segja að hann væri hlut- drægur. Þess vegna er ég feng- inn til að gera þetta. En mér er alveg ómögulegt að standa í þvílíku, og þess vegna ætla ég að biðja þig að gera þetta fyrir mig.“ Mér varð svei mér ekki um sel, en vildi þó ekki neita þessu. Við borðuðum hádegisverð á ------------------ Bergmál gistihúsinu og á eftir hringdi ég til Maríu. „Þú brosir líklega,“ sagði ég, „þegar þú heyrir, hvað forstjór- inn var að vilja með mig hing- að. Mágur hans, borgarstjórinn hérna, fékk hann til að vera dómara í samkeppni milli fal- legra ungbarna, í sambandi við sæluvikuna, sem stendur yfir núna, og hann fékk mig til að dæma fyrir sig, af því að hann getur ekki þolað ungbörn nærri sér.“ Ég var að slíta samtalinu, þegar dyravörðurinn benti mér að koma og tala við sig. „Það er hér símtal við vin yðar, mág borgarstjórans okk- ar“, sagði dyravörðurinn. „Hann virðist hafa vikið sér eitthvað frá. Vilduð þér tala í staðinn? Það er um þessa samkeppni, sem hann á að dæma.“ Ég talaði í símann og mann- auminginn í símanum sagði mér, að samkeppnin mundi ekki fara fram í Park-veitingahús- inu, þar sem kviknað hefði smá- vegis í þar. „Hún mun fara fram í Pier- leikhúsinu og byrjar stundvís- lega kl. 3. Hún átti að vera kl. hálf-fimm, en leikhúsið er lofað öðrum á þeim tíma ....“. 35

x

Bergmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.