Bergmál - 01.09.1951, Page 41

Bergmál - 01.09.1951, Page 41
1951 góð íþróttamanneskja hún er — öðru nær. Ég þekkti einu sinni mann, sem var talinn mjög ást- fanginn af konu, sem talin var bezti tennisleikarinn í héraðinu. Hann hafði verið kvæntur þessari sport-konu sinni í ár, þegar ég hitti hann á förnum vegi. Þegar hann kvaddi mig, sagðist hann þurfa að flýta sér heim „til þess að hjálpa Jenny við búreikningana. Hún getur alls ekki lagt saman tvo og tvo.“ Og hann hraðaði sér heim til að hjálpa Jenny að leggja saman — og með því fannst honum hann sjálfur vera riddaralegur og ómissandi. Og ég held, að það sé vegna þessa, sem hann giftist henni — en ekki af því að hún gat barið tenniskúlur fastar en aðrar stúlkur. II. Hin ráðríka stúlka. Einu sinni sagði Marta (einhver allra laglegasta stúlkan í bænum) mér það í trúnaði, að karlmenn væru ákaflega ginnkeyptir fyrir því að kynnast henni, en svo stingju þeir undantekningarlaust af með einhverri annarri eftir stuttan tíma. „Ég veit ekki til“ sagði hún og brosti, „að það sé neitt athugavert við mig, en samt er það eitthvað, og vinir ------------------- B E R g m Á L mínir eru ófáanlegir til að segja mér, hvað það sé.“ Seinna komst ég að þessu af tilviljun. Ungur bilakaupmaður kynntist Mörtu og fór á stefnu- mót með henni í þrjá mánuði, en hætti svo skyndilega og dró sig í hlé. Þegar ég spurði hann svo, hvað hefði komið fyrir, sagði hann: „Ef ég hefði haldið áfram í nokkrar vikur í viðbót, hefði hún verið búin að gleypa mig gjörsamlega. Hún sagði mér fyrir, í hvaða fötum ég ætti að vera, hvað ég ætti að borða og hverjum ég ætti að kynnast, og mér fannst ég orðinn álíka ósjálfstæður eins og þegar ég var óbreyttur liðsmaður í hern- um. Við vorum einu sinni að skemmta okkur að kvöldlagi með Helen og Jack, og Jack stakk upp á því, að við færum að veiða um næstu helgi. Og þegar ég áttaði mig á því, að ég hafði litið á Mörtu til að vita, hvort hún kinkaði kolli, þá varð mér líka Ijóst, að mér var bezt að hypja mig — og það fyrr en seinna.“ III. Stúlkan með óheilbrigðar hugmyndir um kynferðismálin. Annaðhvort hagar hún sér eins og hún álíti karlmann vera eins 39

x

Bergmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.