Goðasteinn - 01.09.1993, Side 26
það, að ég vil ekki þessa kirkjunnar peninga út láta eða hér yfir
þegja, að hcilög kirkja í Odda skuli missa sína eign og pen-
inga.“
Vísar síra Jón málum sínuin til erkibiskups.
Af þessu er augljóst, að snarpardeilur hafaorðið með þeim síra
Jóni og Ögmundi biskupi vegna reikningsskila Oddastaðar, er síra
Jón tekur við af honum í fardögum 1528.
Enginn efi er á því, að Ögmundi biskupi hafi stórlega mislíkað
málalok í Noregi í deiium sínum við Jón biskup Arason, Þótt
hann yrði að beygja sig fyrir úrskurði erkibiskups og viðurkenna
biskupsdóm Jóns Arasonar á Hólum. Þarf heldur ekki að efa, að
síra Halli hafi mislíkað að verða af þessu vildarbrauði, og þvíekki
borið síra Jóni of vel söguna, er hann kom heim. Loks hefur
Ögmundi tæplega getizt of vel af vináttu síra Jóns við Jón biskup
Arason.
Þykir mér ekki ólíklegt, að Ögmundur biskup hafi sett síra Hall
á Oddann, meðan síra Jón var ytra, enda hefur síra Hallur oft ver-
ið talinn prestur þar milli Jóns biskups Arasonar og síra Jóns
Einarssonar, þótt síra Hallur hafi auðvitað aldrei fengið löglega
veitingu fyrir staðnum.
Þessi sárindi Ögmundar biskups blandast án efa inn í deilurnar
um reikningsskil Oddastaðar vorið 1528. Því hafa þær orðið enn
svæsnari en ella. Síra Jón segir Ögmund biskup ,,leggja á sig
hatur og öfund.“
Þess misskilnings hefur gætt, að deilurnar um Odda hafi snúizt
unt veitingarvaldið yfir staðnum. Þetta er alrangt eins og að fram-
an segir. Deilurnar stóðu aðeins um reikningsskilin. Og í dómi
þeim, sem Ögmundur útnefndi til að dæma um málin 8. júní 1528
og áður er getið, er einmitt tekið fram, að þeir hafi rannsakað lög-
sögu Skálholtsbiskups yfir ,,Oddastað eður öðrum þeim, sem
erkibiskupsveizla er á ‘ ‘. Og dómsniðurstaðan er sú, að Skálholts-
biskup hafi alla lögsögu yfir staðnum og eigi að sjá um rekstur
hans, þar til ,,löglegur eignarmaður kæmi af erkibiskupsins
hendi". Umsjón Skálholtsbiskups nær ekki til veitingarinnar,
heldur auðvitað til hins, að fylgjast með því, hvernig staðurinn er
setinn, og setja þar ráðsmann, ef staðarhaldari er fjarverandi, án
24
Goðasteinn