Goðasteinn - 01.09.2007, Síða 247
Goðasteinn 2007
og Geir giftust 11. september 1948 og settust að í Steinum. Þar tóku þau svo við
búi árið 1951 og bjuggu óslitið á fimmta áratug. Þau voru samhent hjón og
búnaðist vel með vinnusemi og dugnaði. Þau bjuggu hefðbundnu, blönduðu búi
og byggðu upp öll hús á jörð sinni. bæði íbúðar- og peningshús. Meðfram bú-
skapnum stundaði Geir einnig vörubflaakstur allt fram að áttræðu. Því hvíldu
bústörfin, fjölþætt og aflfrek, þeim mun meira á herðum Þórönnu sem gekk í öll
verk, utan dyra og innan, og hlífði sér hvergi.
En lífið hlífði þeim ekki heldur alltaf og þeim var lagður þungur reynslukross á
herðar. Af 12 börnum sem Guð gaf misstu þau þrjá drengi, þann elsta, frumburð-
inn Eyjólf Torfa ársgamlan árið 1950, sjöunda barn sitt misstu þau í fæðingu í
desember 1957 og síðastur dó Magnús, tæplega 5 ára haustið 1960. Hin níu sem
upp komust og báru uppi barnalán og lífshamingju foreldra sinna eru Eyjólfur
Torfi, búsettur í Borgarnesi. Kona hans er Þóra Sigríður Einarsdóttir. Kristín Guð-
rún býr í Reykjavík, gift Ólafi Hróbjartssyni; Tryggvi Einar á heima í Reykjavík,
kona hans er Dagný Ingólfsdóttir; Kolbrún býr í Reykjavík með Guðmundi
Sigurðssyni. Þórhildur Ragna er búsett í Reykjavík, sömuleiðis Magnús Þór, sem
kvæntur er Margréti Þorgeirsdóttur, þá Jóhann Axel, einnig búsettur í höfuð-
borginni, kona hans er Asgerður Svava Gissurardóttir, Finnbogi á heima í Garða-
bæ, kona hans er Dalrós Jónasdóttir, og Guðlaug er til heimilis í Reykjavík, maður
hennar er Þórarinn G. Guðmundsson. Barnabörn Þórönnu voru við lát hennar 24
að tölu og langömmubörnin 6.
Fjölskyldan var Þórönnu mikils virði og hagur og hamingja hvers og eins af
afkomendunum var einnig hennar. Hún unni sér ekki alltaf langrar hvíldar þegar
börnin blessuð voru að vaxa úr grasi og annaðist einnig um aldraða móður sína
sem átti öruggt skjól á ævikvöldinu á heimili Þórönnu og Geirs. Samt gafst tóm til
að rækta fagran garð við bæinn heima í Steinum, grípa í prjóna, leggja sitt af
mörkum til Kvenfélagsins Fjallkonunnar og annarra félagsstarfa eftir atvikum
einnig. Allt var það unnið af sömu heilindum og vandvirkni sem prýddi öll hennar
verk og dagfar yfirleitt. Oft var gestkvæmt í Steinum enda bærinn í þjóðbraut og
gestum ávallt fagnað með gleði og góðum beina.
Þóranna og Geir brugðu búi árið 1994, seldu jörðina og settust að í Þrúðvangi
29 á Hellu. Þar áttu þau góða daga, laus undan erli og önnum ævistarfsins sem var
að baki þótt alltaf gleddi það Þórönnu að koma austur undir Fjöllin og fylgjast
með búskaparönnum sona sinna á Fornusöndum. Á Hellu nutu þau hjónin
samvista við góða granna og ættfólk og hjálpuðust að við að fegra og prýða skrúð-
garðinn sinn við árbakkann svo eftir var tekið.
Geir lést í ágústmánuði 2001. Þóranna bjó áfram á Hellu hálft þriðja ár eftir
það en fluttist í febrúar 2004 til Reykjavíkur og settist að í sama húsi og Kristín
245