Víðförli - 01.05.1951, Side 21
KIRKJULÍF Á GRIKKLANDl
19
raenningu, grískri tungu og kristinni trú. Þegar uppreisnin hófst
1821 voru kirkjunnar menn í fararbroddi. Frelsisbaráttan hófst á
boðunardegi Maríu. Enginn dagur var betur til fallinn, Maria á
svo rík ítök í grísku trúarlífi.
Gríska ríkið komst á kjöl og efldist. Afallið eftir fyrri heims-
styrjöld var tilfinnanlegt en eigi að síður fór hagur hins fátæka
Grikklands sífellt batnandi á 4. tugi aldarinnar.
Þá kom árás Albana og Itala og tíu ára styrjöld hófst. I slóð
Itala komu Þjóðverjar, og þegar aðrar Evrópuþjóðir gátu fagnað
komu friðarins, streymdu grískir kommúnistar af fjöllum ofan,
brenndu þorp, sprengdu brýr, hertóku börn, rændu og myrtu.
Meðan þýzka hernámið stóð yfir fórust 500,000 manns af hungri
og harðrétti. Rauðliðar rændu 28,000 börnum, drápu 3500
óbreytta borgara, yfir 300 jjrestar liðu píslarvætti.
Meðan þessu fór fram Iögðu kirkjunnar menn sig fram um að
telja kjark í þjóðina og koma henni fram úr erfiðleikunum. Bisk-
uparnir lögðu hér þungt lóð á metaskálar. Grískur biskup á ítök
í þjóðlífinu, sem vér getum naumast gert oss grein fyrir. Enda
þótt þetta litla land hafi uin átta tugi biskupa og umdæmi hvers
sé því lítið, eru þeir oft mjög áhrifamiklir í héraði. Eða er það
ef til vill vegna þess, hvað umdæmin eru lítil? Biskup gelur að
jafnaði haft alla þræði í sínum höndum og góður biskup lifir á
meðal fólks síns, vitjar eins oft og kostur er kirkna og kirkjulegra
stofnana, svo sem munaðarleysingjahæla o.s.frv.
Mikið kvað að Damaskinos, erkibiskupi í Aþenu. Hann var
alllengi ríkisstjóri landsins, varakonungur. Aðrir bisku])ar beittu
áhrifum sínum gegn hernámsveldunum. Ég veit til þess, að einum
þeirra tókst að fá Þjóðverja til þess að taka aftur ákvörðun sína
um að útrýma Gyðingum í aðsetursborg hans. í skrúðgöngunni
miklu á þrettándanum. þegar gengið er til sjávar og hafið bless-
að með krossmarki, var að þessu sinni fulltrúum Gyðingasam-
kundunnar í þessari borg ætlaður staður í skrúðgöngunni. Var
það e. t. v. þakklæti til sendiboða hins krossfesta, sem fékk Gyð-
inga til þess að taka þátt í skrúðgöngu, þar sem krossinn var hor-
inn fyrir?