Víðförli - 01.05.1951, Síða 34
Hefur kristindómurinn gert gagn?
Ég ræddi við vin minn ekki alls fyrir löngu. Og þar kom sam-
tali okkar, eins og oft vill verða, að það barst að ástandi al-
mennra málefna, bæði innan lands og utan, og framtíð veraldar.
Hvorugum þótti með öllu gott til þeirra hluta að hugsa, en ekk-
ert er mér minnisstætt af því, sem þar bar á góma. En aftur man
ég ein ummæli þessa vinar míns, sem komu nokkuð aftan að
umræðuefninu og þótt þau væru ekkert sérstaklega frumleg.
Hann sagði: „Ósköp hefur annars kristindómurinn haft lítil áhrif
í þá átt að siðbæta mannkynið.“
Það var mér engin nýjung að heyra þessi orð.
Skelfing hefur kirkjan gert lítið gagn, þegar á allt er litið!
Það er búið að boða kristindóm í 2000 ár og' samt er allt eins
og það er og einmitt þær þjóðir, sem kallast kristnar, hafa
stofnað til mestra vandræða í veröldinni og ógna nú heiminum
með skelfingum þeirra óskapa, sem varla verða með orðum tjáð.
Er ekki komin full og ótvíræð raun á það, að kristindómurinn
er gagnslaus til þess að siðbæta mannkynið? Sannar ekki saga
og samtíð, að kristindómurinn er gjaldþrota?
Þetta og þvíumlíkt heyrist oft í ýmsum tóntegundum og blæ-
brigðum eftir því, hvaða hugur er á bak við. Stundum er í þessu
hlakkhreimur, þegar þeir hafa orðið, sem ekki eru kristindóm-
inum vinveittir, en oft eru svipuð ummæli blandin sársauka þess
hugboðs eða vitundar, að kristin trú búi yfir verðmætum, þrátt
fyrir allt, sem betur væri að menn tileinkuðu sér almennar og
nánar en raun er á.
Nú kemur það reyndar í Ijós, þegar farið er að hugsa út í