Víðförli - 01.05.1951, Page 61

Víðförli - 01.05.1951, Page 61
NIÐUR í BRÁÐAN BREIÐAFJÖRÐ 59 að miðaldaguðfræðin hafi talið, að Guð einn væri fullkominn. En guðfræði allra alda hefur hinsvegar gert skarpan greinarmun á ófullkomnu og illu, þangað til sr. Benjamín skarst í leikinn. Hann telur hið illa aðeins ófullkomnari mynd hins góða. 111 hugsun er góð hugsun á lægra stigi, löstur er vanþroska dyggð, grimmd ófullkomin mildi, lygin aðeins ófullburða sannleikur, hatrið er kærleikur, aðeins í óæðri mynd! Og þekkingin á Guði er fólgin í meðvitund mannsins um það dýpsta og sannasta eðli sitt að vera gæddur náttúrufari og lífs- venjum krókdíla, höggorma, tígrisdýra og sýkla! Hvað ætli þeim gömlu og gegnu merkisberum liberalismans, svo sem eins og Albert gamla Ritschl, hefði orðið, ef þeir hefðu horft upp á önnur eins ódæmi og þetta? Sr. Benjamín telur sig vera að „skýrgreina, hver sé hinn raun- verúlegi kjarni, takmark og eðli kristinnar trúar,“ eins og hann kemst að orði, enda segir hann þetta verið hafa viðleitni „frjáls- lyndrar“ guðfræði, „ef trúarbrögðin mætti með því móti verða göfugri og til meiri hjálpar í siðmenningarbaráttu þjóðanna.“ Það er óhætt að taka liberalismann í forsvar um það, þrátt fyrir allt, að hann hafi áður eða annars staðar komið guðfræð- inni út í þá syndandi eðju, sem hér blasir við.'Fremur myndi þetta vera amerískur „vulgær“ únitarismi og ekki lystilega framreidd- ur. Væri þetta kjarni og eðli kristinnar trúar, þá hefði hún ekki orðið til mikillar hjálpar í siðmenningarbaráttu þjóðanna. Og vandalítið er það að velja á mi'lli þessara „göfugu“ trúarbragða og gamla kristindómsins. Kenning kristindómsins um fa.ll mannsins segir jrelta: Þú hefðir átt að vera annað en þú ert, heimurinn, sem Jiú mót- ar, annar en hann er. Þú ert sekur við þann góða Guð, sem gaf þér líf þitt og heim og ekkert gefur nema það, sém er gott. Guð hefur ekki skapað þig „nákvæmlega eins og þú ert,“ það er langt, langt frá því. Þú skapar þig líka sjálfur og leggur þér örlög, því þú ert ekki aðeins „meðfætt eðli og lífsvenjur,“ þ. e. blind eðlis-

x

Víðförli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víðförli
https://timarit.is/publication/1982

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.