Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.07.2024, Side 27

Læknablaðið - 01.07.2024, Side 27
L ÆKNABL AÐIÐ 2024/110 371 Helga Elídóttir varði doktorsritgerð sína í læknavísindum við Háskólann í Lundi í Svíþjóð þann 26. apríl síðastliðinn. Rit- gerðin ber heitið Aspects on the diverse manifestations of Cystic Fibrosis og fjall- ar um mismunandi hliðar slímseigju- sjúkdóms (CF). Andmælandi var dr. Mirjam Stahl frá Charité, háskólasjúkra- húsinu í Berlín. Ritgerð hennar er í fjórum hlutum. Í þeim fyrsta eru tvær mismunandi skimunaraðferðir við skert sykurþol og sykursýki hjá börnum með CF bornar saman. Í öðrum hluta verkefnisins er notkun á tæki sem metur stífleika lifrar- innar og tengsl lifrarsjúkdóms við skert sykurþol og lungnastarfsemi meðal annars lýst. Í þriðja hluta er metið hvort lyfið lumacaftor-ivacaftor hafi áhrif á sykurþol og lungnastarfsemi hjá börnum og fullorðnum með CF. Sá fjórði lýsir CF á Íslandi. Úr ágripinu Slímseigjusjúkdómur (Cystic Fibrosis, CF) er fjölkerfa sjúkdómur þar sem alvarleg- asta birtingarmynd sjúkdómsins kemur fram í lungum, brisi og lifur. Skima þarf reglulega fyrir þessum fylgikvillum og meðhöndla á réttan hátt og hafa ný lyf komið fram á undanförnum árum sem bæta horfur einstaklinga með þennan sjúkdóm. Í framskyggnri rannsókn var skim- að fyrir CF-tengdri sykursýki hjá börn- um og unglingum með samfelldri blóðsykurmælingu og sykurþolsprófi. Fyrrnefnda aðferðin tengdist frekar þátt- um sem benda til skerts sykurþols og mat ekki sömu þætti og sykurþolsprófið. Börn með skert sykurþol reyndust hafa lakari lungnastarfsemi. Stífleiki lifrar- innar var metinn með tæki sem kallast 2 dimensional shear wave elastograpy. Auk- inn stífleiki lifrar tengdist skertu sykur- Hvað segir nýdoktorinn? Af hverju vildir þú verða læknir? „Ég hef aldrei haft neinn sérstakan áhuga á raungreinum en ég hef áhuga á fólki og mér fannst sjúkrahúsveröldin svo furðulegt fyrirbæri að mig langaði að kynn- ast henni betur.“ Hversu erfitt er að verða doktor á skalanum 1-10? „Með fullri virðingu fyrir þeim sem setja hátt skor á skalann, get ég ekki sagt að þetta sé mjög erfitt í hinu stóra samhengi lífsins og gef þessu 4.“ Hvað yrði þitt fyrsta verk sem heilbrigðisráðherra? „Ég myndi gera alla heilbrigðisþjónustu, lyf og hjálpartæki fyrir börn gjaldfrjáls og stuðla þannig að jöfnu aðgengi og réttlátara heilbrigðiskerfi fyrir börn.“ Hvað er það skemmtilegasta að gera þegar þú ert ekki í vinnunni? „Ver tíma með mínu besta fólki, fjölskyldunni.“ þoli, lægra D-vítamíngildi og lakari lungnastarfsemi. Kannað var með afturskyggnri að- ferð hvort genasértækt lyf, lumacaftor- ivacaftor, hefði áhrif á sykurþol og lungnastarfsemi hjá börnum og fullorðn- um einstaklingum með CF og virtist lyfið hafa viss áhrif, sérstaklega við skert sykuþol. Við rannsókn á CF á Íslandi kom í ljós að þrátt fyrir að CF sé ekki eins algengt á Íslandi og í flestum öðrum löndum Evrópu er genabreytan N1303K með hæstu þekktu tíðni hér á landi. Um doktorinn Helga útskrifaðist frá læknadeild Há- skóla Íslands árið 2003. Hún starfaði á Landspítala, heilsugæslu og Barnaspít- ala Hringsins 2003-2008. Hún starfaði á háskólasjúkrahúsinu á Skáni í Svíþjóð á árunum 2008-2019, fyrst sem náms- læknir og síðustu árin sem yfirlæknir barnalungnalækninga. Þar hlaut hún sérfræðiréttindi í barnalækningum árið 2011 og síðar sérfræðiréttindi í ofnæm- issjúkdómum og lungnasjúkdómum barna. Helga flutti aftur heim í lok árs 2019 og hefur starfað á Barnaspítala Hrings ins síðan þá, en einnig að hluta til á lyflækningasviði Landspítala við göngudeild lungnalækninga fyrir full- orðna einstaklinga með CF. Helga hefur ennfremur verið með eigin rekstur hjá Domus barnalæknum síðan 2022. Hún stundaði doktorsnám meðfram vinnu við Háskólann í Lundi árin 2019-2024. Skrifaði um mismunandi hliðar slímseigjusjúkdóms Doktorsvörn frá Háskólanum í Lundi: Helga Elídóttir

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.