Læknablaðið - 01.07.2024, Page 27
L ÆKNABL AÐIÐ 2024/110 371
Helga Elídóttir varði doktorsritgerð sína
í læknavísindum við Háskólann í Lundi
í Svíþjóð þann 26. apríl síðastliðinn. Rit-
gerðin ber heitið Aspects on the diverse
manifestations of Cystic Fibrosis og fjall-
ar um mismunandi hliðar slímseigju-
sjúkdóms (CF). Andmælandi var dr.
Mirjam Stahl frá Charité, háskólasjúkra-
húsinu í Berlín.
Ritgerð hennar er í fjórum hlutum.
Í þeim fyrsta eru tvær mismunandi
skimunaraðferðir við skert sykurþol og
sykursýki hjá börnum með CF bornar
saman. Í öðrum hluta verkefnisins er
notkun á tæki sem metur stífleika lifrar-
innar og tengsl lifrarsjúkdóms við skert
sykurþol og lungnastarfsemi meðal
annars lýst. Í þriðja hluta er metið hvort
lyfið lumacaftor-ivacaftor hafi áhrif á
sykurþol og lungnastarfsemi hjá börnum
og fullorðnum með CF. Sá fjórði lýsir CF
á Íslandi.
Úr ágripinu
Slímseigjusjúkdómur (Cystic Fibrosis, CF)
er fjölkerfa sjúkdómur þar sem alvarleg-
asta birtingarmynd sjúkdómsins kemur
fram í lungum, brisi og lifur. Skima þarf
reglulega fyrir þessum fylgikvillum og
meðhöndla á réttan hátt og hafa ný lyf
komið fram á undanförnum árum sem
bæta horfur einstaklinga með þennan
sjúkdóm.
Í framskyggnri rannsókn var skim-
að fyrir CF-tengdri sykursýki hjá börn-
um og unglingum með samfelldri
blóðsykurmælingu og sykurþolsprófi.
Fyrrnefnda aðferðin tengdist frekar þátt-
um sem benda til skerts sykurþols og
mat ekki sömu þætti og sykurþolsprófið.
Börn með skert sykurþol reyndust hafa
lakari lungnastarfsemi. Stífleiki lifrar-
innar var metinn með tæki sem kallast
2 dimensional shear wave elastograpy. Auk-
inn stífleiki lifrar tengdist skertu sykur-
Hvað segir nýdoktorinn?
Af hverju vildir þú verða læknir?
„Ég hef aldrei haft neinn sérstakan áhuga á raungreinum en ég hef áhuga á fólki
og mér fannst sjúkrahúsveröldin svo furðulegt fyrirbæri að mig langaði að kynn-
ast henni betur.“
Hversu erfitt er að verða doktor á skalanum 1-10?
„Með fullri virðingu fyrir þeim sem setja hátt skor á skalann, get ég ekki sagt að
þetta sé mjög erfitt í hinu stóra samhengi lífsins og gef þessu 4.“
Hvað yrði þitt fyrsta verk sem heilbrigðisráðherra?
„Ég myndi gera alla heilbrigðisþjónustu, lyf og hjálpartæki fyrir börn gjaldfrjáls
og stuðla þannig að jöfnu aðgengi og réttlátara heilbrigðiskerfi fyrir börn.“
Hvað er það skemmtilegasta að gera þegar þú ert ekki í vinnunni?
„Ver tíma með mínu besta fólki, fjölskyldunni.“
þoli, lægra D-vítamíngildi og lakari
lungnastarfsemi.
Kannað var með afturskyggnri að-
ferð hvort genasértækt lyf, lumacaftor-
ivacaftor, hefði áhrif á sykurþol og
lungnastarfsemi hjá börnum og fullorðn-
um einstaklingum með CF og virtist
lyfið hafa viss áhrif, sérstaklega við skert
sykuþol. Við rannsókn á CF á Íslandi
kom í ljós að þrátt fyrir að CF sé ekki
eins algengt á Íslandi og í flestum öðrum
löndum Evrópu er genabreytan N1303K
með hæstu þekktu tíðni hér á landi.
Um doktorinn
Helga útskrifaðist frá læknadeild Há-
skóla Íslands árið 2003. Hún starfaði á
Landspítala, heilsugæslu og Barnaspít-
ala Hringsins 2003-2008. Hún starfaði á
háskólasjúkrahúsinu á Skáni í Svíþjóð
á árunum 2008-2019, fyrst sem náms-
læknir og síðustu árin sem yfirlæknir
barnalungnalækninga. Þar hlaut hún
sérfræðiréttindi í barnalækningum árið
2011 og síðar sérfræðiréttindi í ofnæm-
issjúkdómum og lungnasjúkdómum
barna.
Helga flutti aftur heim í lok árs
2019 og hefur starfað á Barnaspítala
Hrings ins síðan þá, en einnig að hluta
til á lyflækningasviði Landspítala við
göngudeild lungnalækninga fyrir full-
orðna einstaklinga með CF. Helga hefur
ennfremur verið með eigin rekstur hjá
Domus barnalæknum síðan 2022. Hún
stundaði doktorsnám meðfram vinnu
við Háskólann í Lundi árin 2019-2024.
Skrifaði um mismunandi
hliðar slímseigjusjúkdóms
Doktorsvörn frá Háskólanum í Lundi:
Helga Elídóttir