Læknablaðið - 01.07.2024, Side 40
Fylgirit og flóttinn á vit Dana
110 árgangar þriðja elsta tímarits landsmanna skannaðir
1975-1984
Þröstur Haraldsson
blaðamaður
Þá er sjöundi áratugur útgáfusögunn-
ar hafinn og heilmikið að gerast. Sá
sjötti endaði á því að brot blaðsins var
stækkað, en sá sjöundi boðaði enn meiri
breytingar.
Í byrjun árs 1976 verða ritstjóraskipti
þegar Örn Bjarnason tekur við ritstjórn
félagslega hlutans af Arinbirni Kolbeins-
syni. Örn tekur sig til og ræður starfs-
mann, fyrsti ritstjórnarfulltrúinn var
Sigurjón Jóhannsson og hann byrjar á
því að taka viðtal við formann færeyska
læknafélagsins sem var í heimsókn.
Árið eftir hættir hinn ritstjórinn, Páll
Ásmundsson, en Bjarni Þjóðleifsson tek-
ur við fræðilega hlutanum. Loks kemur
Þórður Harðarson til liðs við þá tvo.
Þrátt fyrir þessa verkaskiptingu rit-
stjóranna er efni blaðsins áfram blanda
af fræðilegu og félagslegu efni, en það er
líka að breytast. Það má merkja að skoð-
anir eru skiptar um hverjar skuli vera
áherslur blaðsins. Stundum er kvartað
yfir því að fræðilegi hlutinn þurfi að líða
fyrir endalausar langlokur af fundum
og þingum lækna. Dæmi um slíkt er frá
1975 þegar eitt þriggja tölublaða ársins er
að stærstum hluta – heilar 50 blaðsíður
– lagt undir fundargerðir af ársfundum
LÍ í 4 ár. Ritstjórar verja þetta með þeim
rökum að vissulega þurfi og vilji læknar
fylgjast með því sem gerist í kjaramálum
þeirra og öðrum félagsmálum.
Ekki á Jótlandsheiðar, en …
En það hillir fljótlega undir talsverðan
örlagavald í þróun blaðsins þegar farið
er að ræða hugsanlegan stuðning frá for-
lagi danska Læknafélagsins við útgáfu
Læknablaðsins.
Í frétt frá ritstjórn árið 1979 segir frá
því að danskur ráðgjafi hafi tekið þátt
í „gagngerðri endurskoðun“ á rekstri
blaðsins. Hafnar séu viðræður við Dani
um að taka að sér prentun blaðsins og
öflun auglýsinga frá alþjóðlegum lyfja-
fyrirtækjum. Inn í þessar umræður
blandast svo tölvuvæðingin sem er mik-
ið til umræðu þessi misserin.
Í Danmörku er forlag lækna farið að
tölvusetja blað sitt og býðst nú til að
gera slíkt hið sama fyrir það íslenska. Er
skemmst frá því að segja að árið eftir,
1980, er prentun blaðsins flutt úr Félags-
prentsmiðjunni í Mohns Bogtrykkeri við
Store Kongensgade skammt frá Kóngsins
Nýjatorgi í Kaupmannahöfn.
Þessi ákvörðun hafði töluverð áhrif
á útgáfu blaðsins og vinnslu. Heimildir
um þetta eru því miður fremur fátæk-
legar þar sem þau þrjú sem stærstan
þátt áttu að málum á þeim 14 árum sem
danska prentunin var í gangi eru ekki
lengur til frásagnar, Örn Bjarnason er
nýfallinn frá og það sama gildir um rit-
stjórnarfulltrúann Jóhannes Tómasson,
en sú sem tók við af Jóhannesi, Birna
Þórðardóttir, er enn á lífi þótt minnið
Úr sögu Læknablaðsins
sé orðið laskað. Þetta er mjög miður því
hlutur þessara þriggja í því að halda
blaðinu á lífi er ósmár.
En svona í baksýnisspeglinum sýn-
ist mér að dönsku setjararnir hafi átt í
nokkrum örðugleikum með að tileinka
sér íslenskar reglur um orðskiptingar.
Að öðru leyti er blaðið ekki síðra en
áður, prentun mynda batnar mikið. Sú
breyting verður þó smátt og smátt að
félagslegt efni verður æ fátæklegra, en
fræðilegi hlutinn blómstrar með aukinni
og reglulegri útgáfutíðni.
Mér skilst að erfiðara hafi reynst að
vera með ferskar íslenskar fréttir þar
sem vinnslutími blaðsins lengdist með
þessari útvistun. Það kemur því í sjálfu
sér ekki á óvart að nýtt rit hafi komið til
sögunnar árið 1983: Fréttabréf lækna sem
kom út mánaðarlega allt árið og var við
lýði fram til 1994 þegar dönsku útlegð-
inni linnti og blöðin sameinuðust á ný í
íslenskri prentsmiðju.
Skriffinnskan tölvuvædd
Það er fleira sem angrar lækna í tækni-
þróun þessara ára. Í blaðinu er talsvert
fjallað um það sem nefnt er „tölvuvæð-
ing skriffinnskunnar“.
Þar birtast nokkrar greinar eftir El-
ías Davíðsson tölvufræðing og Ásmund
Brekkan lækni um það sem læknar
bundu vonir við að tæki af þeim ómakið
384 L ÆKNABL AÐIÐ 2024/110