Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.07.2024, Síða 40

Læknablaðið - 01.07.2024, Síða 40
Fylgirit og flóttinn á vit Dana 110 árgangar þriðja elsta tímarits landsmanna skannaðir 1975-1984 Þröstur Haraldsson blaðamaður Þá er sjöundi áratugur útgáfusögunn- ar hafinn og heilmikið að gerast. Sá sjötti endaði á því að brot blaðsins var stækkað, en sá sjöundi boðaði enn meiri breytingar. Í byrjun árs 1976 verða ritstjóraskipti þegar Örn Bjarnason tekur við ritstjórn félagslega hlutans af Arinbirni Kolbeins- syni. Örn tekur sig til og ræður starfs- mann, fyrsti ritstjórnarfulltrúinn var Sigurjón Jóhannsson og hann byrjar á því að taka viðtal við formann færeyska læknafélagsins sem var í heimsókn. Árið eftir hættir hinn ritstjórinn, Páll Ásmundsson, en Bjarni Þjóðleifsson tek- ur við fræðilega hlutanum. Loks kemur Þórður Harðarson til liðs við þá tvo. Þrátt fyrir þessa verkaskiptingu rit- stjóranna er efni blaðsins áfram blanda af fræðilegu og félagslegu efni, en það er líka að breytast. Það má merkja að skoð- anir eru skiptar um hverjar skuli vera áherslur blaðsins. Stundum er kvartað yfir því að fræðilegi hlutinn þurfi að líða fyrir endalausar langlokur af fundum og þingum lækna. Dæmi um slíkt er frá 1975 þegar eitt þriggja tölublaða ársins er að stærstum hluta – heilar 50 blaðsíður – lagt undir fundargerðir af ársfundum LÍ í 4 ár. Ritstjórar verja þetta með þeim rökum að vissulega þurfi og vilji læknar fylgjast með því sem gerist í kjaramálum þeirra og öðrum félagsmálum. Ekki á Jótlandsheiðar, en … En það hillir fljótlega undir talsverðan örlagavald í þróun blaðsins þegar farið er að ræða hugsanlegan stuðning frá for- lagi danska Læknafélagsins við útgáfu Læknablaðsins. Í frétt frá ritstjórn árið 1979 segir frá því að danskur ráðgjafi hafi tekið þátt í „gagngerðri endurskoðun“ á rekstri blaðsins. Hafnar séu viðræður við Dani um að taka að sér prentun blaðsins og öflun auglýsinga frá alþjóðlegum lyfja- fyrirtækjum. Inn í þessar umræður blandast svo tölvuvæðingin sem er mik- ið til umræðu þessi misserin. Í Danmörku er forlag lækna farið að tölvusetja blað sitt og býðst nú til að gera slíkt hið sama fyrir það íslenska. Er skemmst frá því að segja að árið eftir, 1980, er prentun blaðsins flutt úr Félags- prentsmiðjunni í Mohns Bogtrykkeri við Store Kongensgade skammt frá Kóngsins Nýjatorgi í Kaupmannahöfn. Þessi ákvörðun hafði töluverð áhrif á útgáfu blaðsins og vinnslu. Heimildir um þetta eru því miður fremur fátæk- legar þar sem þau þrjú sem stærstan þátt áttu að málum á þeim 14 árum sem danska prentunin var í gangi eru ekki lengur til frásagnar, Örn Bjarnason er nýfallinn frá og það sama gildir um rit- stjórnarfulltrúann Jóhannes Tómasson, en sú sem tók við af Jóhannesi, Birna Þórðardóttir, er enn á lífi þótt minnið Úr sögu Læknablaðsins sé orðið laskað. Þetta er mjög miður því hlutur þessara þriggja í því að halda blaðinu á lífi er ósmár. En svona í baksýnisspeglinum sýn- ist mér að dönsku setjararnir hafi átt í nokkrum örðugleikum með að tileinka sér íslenskar reglur um orðskiptingar. Að öðru leyti er blaðið ekki síðra en áður, prentun mynda batnar mikið. Sú breyting verður þó smátt og smátt að félagslegt efni verður æ fátæklegra, en fræðilegi hlutinn blómstrar með aukinni og reglulegri útgáfutíðni. Mér skilst að erfiðara hafi reynst að vera með ferskar íslenskar fréttir þar sem vinnslutími blaðsins lengdist með þessari útvistun. Það kemur því í sjálfu sér ekki á óvart að nýtt rit hafi komið til sögunnar árið 1983: Fréttabréf lækna sem kom út mánaðarlega allt árið og var við lýði fram til 1994 þegar dönsku útlegð- inni linnti og blöðin sameinuðust á ný í íslenskri prentsmiðju. Skriffinnskan tölvuvædd Það er fleira sem angrar lækna í tækni- þróun þessara ára. Í blaðinu er talsvert fjallað um það sem nefnt er „tölvuvæð- ing skriffinnskunnar“. Þar birtast nokkrar greinar eftir El- ías Davíðsson tölvufræðing og Ásmund Brekkan lækni um það sem læknar bundu vonir við að tæki af þeim ómakið 384 L ÆKNABL AÐIÐ 2024/110

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.