Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2004, Síða 7

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2004, Síða 7
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2004 Blómaval. Ég var ekki þá kominn með meistararéttindi en mágur minn leppaði þetta verk og ég hafði mikla ánægju af að smíða þetta hús. Þetta hús var kjallari, hæð og hátt ris með þremur snúningsstigum. Þegar smíði hússins var lokið réð ég mig í vinnu hjá Magnúsi Vigfússyni byggingameistara en hann var þá að byggja Sambandshúsið við Sölvhólsgötu í Reykja- vík og var ég hjá hon- um í eitt ár. Einar Bergmann, mágur minn, sem þá var framkvæmdastjóri HÓ lagði mikið að mér að koma vestur þar sem mikil upp- bygging væri þar í vændum. Við flytjum þá til Ólafsvíkur árið 1949, ég og Herdís, en erfitt var með húsnæði í bænum á þessum árum. Magnús var ekki ánægður með að ég færi vestur þar sem mikið var að gera hjá honum og hann sagðist hafa getað útvegað olckur húsnæði í bænum. Við höfðum svo sem ekkert víst húsnæði hér í Ólafsvík. Fengum þó leiguhúsnæði inni í Hlíð hjá Siggu Hans en hún og Jón áttu fokhelt hús þar sem var stofa og herbergi og ég snara mér í að múra það. Svo höfðum við að- gang að eldhúsinu hjá Sigríði og hún var sem móðir okkar meðan við vorum í Hlíð.“ Meira en smiður Þegar Vigfús og Herdís flytjast til Ólafsvíkur fer Vigfús fyrst að vinna hjá Böðvari Bjarnasyni byggingameistara. Svo skildu leiðir þeirra og Vigfús fór að Guðmundur Þórarinsson við pott sem notaður var til að hita tjöruna sem fór þak Salthússins. vinna sjálfstætt og hefur hann aldrei skort verkefni. Vigfús hefur gert meira en að smíða hús hér í Ólafsvík. Hann teiknaði líka mörg þeirra. Enginn rafvirki var í Ólafsvík en þetta lagaðist allt þeg- ar Tómas heitinn Guðmundsson rafvirki kom í bæinn. Oft kom það fyrir að hann varð að teikna meðan hann var í matartíma til að geta haldið áfram með verkið. Vigfús átti gott með að teikna og eins og sést á mörgum húsum hér í Ólafsvík. Hann teiknaði m.a. húsið sem hann og Herdís búa í í Bæjartúninu, Skálholt 11, hús El- inbergs og Gestheiðar, Brautarholt 7 sem Aðalsteinn Guðbrandsson og kona hans María áttu og einnig Brautarholt 8. Þá teiknaði hann hús dóttur sinnar Kristínar og Erlings Jónassonar að Sand- holti 32 og mörg fleiri. „Á þessum árum þegar ég kem úr bænum er Böðvar heitinn Bjarnason nánast eini smiðurinn hér í Ólafsvík. Atvinna fer að aukast mikið hér eftir 1950 og bátum er þá farið að fjölga, netaveiðar eru að byrja og mikil bjartsýni í bænum. Ég sé fjótlega að ég verð að fá mér steypuhrærivél og þegar ég er að byggja húsið mitt á Grundarbraut 20 sem ég teiknaði líka þá fékk ég lán í Sparisjóðnum. Það fór ekki allt í húsið heldur einnig til að kaupa tré- smíðavél en innréttingin í eldhúsið varð að bíða um stund við litlar undirtektir eiginkonunnar. Ég smíð- aði alla glugga, hurðir og inrétt- ingar sjálfur og vinnan við hvert hús var því mikil. I mörg ár voru í gangi smíði á fimm til átta hús- um hjá smiðum í Ólafsvík." Þess má geta að fleiri góðir smiðir voru í Ólafsvík á þessum árum. Þegar Vigfús kemur til Ólafsvíkur voru fyrir smiðir eins og Böðvar heit- inn Bjarnason en einnig var Sveinbjörn Sigtryggsson, mágur Vigfúsar, afkastmikill smiður en hann lærði hjá Böðvari. Bygging grunnskólans Þegar bygging Grunnskólans 1954 fór af stað þá var mjög mikil vinna sem fylgdi því verki. Ég var ekki búinn vera hér í nema tvö ár þegar vinnan við hann hófst og það urðu hörð átök um byggingu hans. Jónas Þorvaldsson var þá oddviti í Ólafsvík og Guðbrandur Flytjum öllum sjómönnum í Snæfellsbæ og fjölskyldum þeirra bestu kveðjur í tilefni sjómannadagsins
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.