Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2004, Síða 8
6
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2004
Bæjartún 9, heimili Herdísar og Vigfósar. Húsið er teiknað og byggt
af Vigfósi árið 1956.
Vigfússon var þá líka í
hreppsnefndinni sem þá var.
Eg talaði við þá báða og
menn bitust um að fá verk-
ið. Jónas var mjög verklag-
inn maður og vildi líka gera
verkið á sem bestan hátt fyr-
ir bæinn.
Akveðið var að slá upp
fyrir sökklum á ákveðnum
tíma og síðan vildi Jónas
láta starfsmenn bæjarins
fylla í grunninn og leggja
skólplögnina undir eftirliti
sínu. Svo að lokum er tekin
ákvörðun um það á hreppsnefnd-
arfundi að ég skyldi fá verkið.
Þetta verk var allt unnið af mikl-
um myndarbrag og fengnir fag-
menn í hvert verk, t.d. málari frá
Akranesi sem hét Jónas Árnason
og pípari sem hét Sigurður Egils-
son og með þessum mönnum var
skemmtilegt að vinna. Það var vel
gengið frá öllu. A tímum Braga
sveitarstjóra og Hinriks Konráðs-
sonar sem var oddviti þá var tekin
ákvörðun um byggingu sundlaug-
arinnar hér í Ólafsvík og grunnur-
inn var grafinn fyrir byggingunni
og henni svo lokið þegar H-listinn
tók við. Verkið var þá boðið út
og ég fékk það og einnig þegar
Grunnskólinn var stækkaður til
vesturs.“
Rafstöðin byggð
Margt fleira var að gera á þessum
árum, m.a. bygging rafstöðvarinn-
ar ínni í dal. Þá er Vigfús með
verkstæði í kjallara gamla Félags-
heimilisins. Hann átti þá lítinn
hefil sem heflaði 40 cm breidd og
hann ásamt sínum starfsmönnum
tóku að sér að hefla allt timbrið í
húsið. Hefluð var önnur hliðin
sem átti að snúa inn því
ekki átti að múra bygging-
una að utan. AJls var þetta
timbur fjórir ,,standardar“
eða um 16 þúsund fet á
lengd. Timburstaflinn var
allur á bak við hús Óskars
Clausen en það stóð á horni
Grundarbrautar og Ólafs-
brautar. Þar sem mikið
verk var að fara með allt
timbrið inn í hús fóru þeir
með hefilinn út og allt gert
úti. Vigfús var ekki með
sjálfa smíðina á rafveituhús-
inu en svo fór að lokum hann
kláraði það þar sem meistarinn
sem var með það var látinn í ann-
að verk.
Fyrsti lærlingurinn hjá Vigúsi
var Sigurður Jakob en hann átti
heima í Ásgarði en alls hefur hann
haft tíu lærlinga. Hinir eru Geir
Þorsteinsson í Efstabæ, Stefán Jó-
hann Sigurðsson, Smári Lúðvíks-
son, Ingibjartur Þórjónsson, Ingi-
mar Halldórsson, Sigurður Elin-
bergsson, Björn Jónsson á Grund,
Hervin, sonur Vigfúsar, og Gissur
Jóhannsson.
Óska öllum
sveitungum mínum
og sjómönnum
til hamingju
með daginn!
FISKBÚÐIN HAFRÚN
Skipholt 70, Reykjavík
Sími: 553 0003
Magnús Sigurðsson
SJÓMENN 06 FJÖLSKVLDUR í
SNÆFELLSBÆ!
TIL HAMINGJU MEf) ÞA6INN
ÞÍN VERSLUN
VERSLUN í HEIMABVGGÞ
VERSLUNIN
KASSINN
Ólafsbraut 55, sími: 436 1376