Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2004, Side 39
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2004
37
fjölgaði togurum sem gerðir voru
út frá Grundarfirði. Arið áður
eða 18. desember 1974 hafði
Guðmundur stofnað með fjöl-
skyldu sinni fyrirtækið Guð-
mundur Runólfsson hf. Á þess
könnu var útgerðin og netaverk-
stæðið en fyrirtækið Sæfang hf. í
eigu sömu aðila annaðist fiskverk-
un. Þessi tvö fyrirtæki sameinuð-
ust svo í eitt fyrirtæki þann 30.
september 1993 undir nafninu
Guðmundur Runólfsson hf. Það
fyrirtæki er í dag ein meginstoðin
í atvinnulífi Grundfirðinga, gerir
út togarann Hring SH 535 og
togskipið Helga sem fengið hefur
skráningarnúmer Runólfs SH135.
Fyrirtækið rekur eigin fiskvinnslu
og netaverkstæði. Þótt Guð-
mundur sé fyrir allmörgum árum
hættur að skipta sér af rekstri fyr-
irtækisins líður varla sá dagur að
hann líti ekki við á skrifstofunni
hjá sonum sínurn sem stýra fyrir-
tækinu í dag, til að leita frétta af
gangi mála. Fjölskyldufyrirtæki
hans stendur föstum fótum í því
samfélagi sem hann hefur alla tíð
lifað fyrir og nú nýverið var
ákveðið að tryggja fyrirtækið enn
frekar í sessi í Grundarfirði með
því að taka það út af verðbréfa-
þingi og fjölskyldan keypti til sín
hluti annarra í fyrirtækinu. Guð-
mundur Runólfsson getur því lit-
ið stoltur yfir farinn veg. „Eg er
sáttur við lífið og tilveruna,“ segir
Guðmundur að lokum, „þótt mér
hafi ekki tekist að uppfylla loforð-
ið sem ég gaf einum kokknum
mínum forðum.“ Undirritaður
spyr hvað það hafi verið. Guð-
mundur kímir og svipurinn á
honum verður strákslegur: „Ég
lofaði honum vegna þess hvað
hann var úrillur, að ef vel veiddist
skyldi ég sjá til þess að hann kæm-
ist í kast við ærlegan kvenmann.
Svo veiddist vel en ég gat aldrei
uppfyllt loforðið,“ segir Guð-
mundur og hlær.
Gunnar Kristjánsson
Gísli Stefánsson
Formannavísur
eftir Gísla Stefánsson,
kveðnar um formenn sem réru frá Keflavík undir Jökli 1908.
Sjá samantekt Skúla Alexanderssonar um formennina á blaðsíðu 38.
Eins er Loftur laghendur
lýði að verja slettum,
þó að háar haföldur
hrynji á sjávarklettum.
Eins er Gísli eg til veit
öldu stýrir karfa,
huglítil hjá hölda sveit
hæfur lítt til starfa.
Keflavíkur formenn fá
fiskað oft til muna,
þeir sem láta um löginn blá
lægisjóa bruna.
Daginn þegar seggir sjá,
samt mér við má óa,
formennirnir fara á stjá
firðar kalla og róa.
Er Guðmundur eklti sár
enda sagður laginn,
sinn að láta kaðlaklár
kljúfa ósléttan æginn.
Til aflafanga orkustór
aðgætinn við stýri
setur Guðbjörn súðajór
sinn á hnísumýri.
Dagóbert er drengur snar
djarft má hreysti þróa
sína kallar seggi og mar
saman, til að róa.
Kristján hefur káta lund,
kann því vart að bíða,
sinn fram setur súðahund
sels um grundu víða.
Þegar liðin löng er nótt
lítt má veður baga,
Elínmundur fer þá fljótt
fram um ránarhaga.
Alvanur og aðgætinn
öldu beita hrafni,
sem kom hingað sæmd búin
Sveinn var hann að nafni.
Formenn nú ei fleiri má
finna hér sem róa
sínum kjóa ára á
ufsadals um flóa.
Ósk mín það er ein með sann
innst í hjarta sprottin,
bæði um land og birtingsrann
blessi ykkur drottinn.
Ártal grundað ýtum hjá
og í bundið letur,
nítján hundruð nefna má
nú er átta betur.
Gísli ljóða lagar skrá
lítt er til þess fallinn,
berurjóðri byggir á
býsna heimskur kallinn.