Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2004, Blaðsíða 34

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2004, Blaðsíða 34
32 Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2004 Björgun skipbrotsmanna á Hafdísi SH 7 Þessi saga sem hér fer á efitir fjall- ar um það þegar Hafdís SH 7 fórst fyrir 49 árum. Hún er sögð af skipstjóranum Erlingi Viggós- syni en báturinn var í eigu þeirra Grímúlfs Andréssonar og Jó- hannesar Kristjánssonar frá Stykkishólmi. A bátnum voru fimm menn auk Erlings, þeir Friðþjófur Guðmundsson og sonur hans Sævar frá Rifi og einnig Sigurður Þórðarson frá Rifi. Þá voru tveir Færeyingar, þeir Gustaf og Tari en þeir voru frá Þórshöfn. Hafdísin var 27 lesta tréskip, smíðað í Reykjavík árið 1939. Báturinn hét áður Jón Finnsson GK 506 og hafði verið dýpkunar- skipinu Gretti til aðstoðar við dýpkun Rifshafnar sum- arið 1955. Gefum Erlingi orðið: „Eftir áramótin 1955 og 56 fórum við og fleiri að undirbúa okkur til róðra á vertíðina. Þetta var okkar fýrsta vertíð frá þessari nýju höfn, Rifshöfn. Þann 6. mars vorum við á sjó um 20 til 30 mílur NV frá Rifi. Veður hafði verið sæmilegt framan af degi en þegar kom fram á daginn fór að hvessa að vestan og um kl. 17:00 var komið afspyrnurok og mikill sjór. Þegar búið var að draga línuna var gengið frá á dekki eins og hægt var. Allir fóru niður í lúkar nema við Sævar sem fórum aftur í stýrishús. Við komnir af stað heim þegar heljar- mikið brot kom á bátinn stjórn- borðsmegin. Hann fór alveg á hliðina og möstrin námu við sjó. Sjórinn flæddi strax í lúkarinn og inni í stýrishúsinu stóðu hausarnir á okkur Sævari uppúr. Ég sagði við hann: „svona eigum við þá að fara vinur,“ en hann svaraði strax: „nei andskotinn.“ Þessi viðbrögð hans voru hressandi. Talstöðin var komin úr sam- bandi við rafgeymana og tók tíma að koma því í lag og ná sambandi við land og aðra báta. Við báðum strax um aðstoð því eftir að fokk- an rifnaði og fauk vorum við stjórnlaust rekald. Biðin eftir að- stoð var erfið en eftir að togarinn Hallveig Fróðadóttir sagðist vera á leið til okkar leið mönnum mikið skár. Þeir á togaranum miðuðu okkur út annað slagið þessa tólf klukkutíma sem við vorunr á reki og sögðu að rekhraðinn á okkur væri 5 mílur. Nokkur brot feng- um við á okkur til viðbótar en ekkert eins og það fyrsta. Þegar togarinn kom loksins að okkur Hafdís SH 7, áður Jón Finnsson GK 506. momiununi |]M klukkan hálífimm í gær kom U hintttA <tl Reykjavlkur nf veiílum, Á leið inn til hjálpar hinum nauðsladda vélbát frá Skipsmenn á bátnum yfirgáfu hann í stórsjó togarartn, scm lagðí að bátnum, sem hrakti mannlnn kom siálfur að blotna tiðu vfirmenn togarans dugnað Guðmundar og mennsku hans. ÓMEIDDIR Skipbrntsmenn af Hafdísi \ VAR Á HEIMI.EID Tiðindamaður Mbl. átti stult samtai við skípbrotsmenn um borð í togaranum í Rærd;*«' Þeir WSÍBo íarið í rMli,r>''»»«ví>™- tfeiskvSldiS Övii*® M sSWdíis á nr»ifad»(ti»i> var atómjór y*'unn skómmu siðar. var á heimleið, er á kom beljarólag og færfii! allír ‘ómeiddir að hcita mát hann að mestu S kaf. I þessu ejnn hafði tognafi litilshótts ótaeí okolaði öllu lauslecu af ci.ín.tíMnr, 4 uimtm Urklippa úr Morgunblaðinu sigldi hann vindmegin upp að hlið bátsins og þegar skipin komu saman stukku allir á tveim „ról- um“ nema einn Færeyingur sem varð eftir. Þá tók sig til einn skipsmaður á Hallveigu sem hét Guðmundur Einarsson. Hann fór úr sjóstakknum og stökk út í Hafdísina og tók manninn með sér um borð í togarann á sama rólinu. Það var vel gert og mikil hetju- dáð unnin af Guðmundi. Bátinn sáum við aldrei aftur. Guðmundur fékk síðar björgunarafreksverðlaun fyr- ir frækilegt afrek sitt.“ Ritað á Osi á Eyrabakka 13.03. 2004. Eriingur Viggósson Hallveig sigldi síðan með skipbrotsmennina til Reykjavíkur eftir þessa giftusamiegu björgun en sem betur fór slasaðist eng- inn mannanna. Talið var að báturinn hafi borið upp að Barðaströndinni og brotnað þar í spón en ekkert fannst úr honum þrárt fyrir leit. vorum Hallveig Fróðadóttir sem bjargaði skipbrotsmönnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.